föstudagur, ágúst 29, 2008
hætta dreifingu Fréttablaðsins, frétti ég, og blaðburðarfólki hafði verið sagt upp. Mér létti dálítið: Ég sá fyrir mér lækkandi blaðastafla á skápnum í forstofunni. En svo..í dag varð atvik sem líður mér ekki úr minni. Allt í einu sá ég unglegan og fremur hraustlegan mann tilsýndar þar sem hann skokkaði um með tösku yfir öxlina. Hann var beinn í baki og lyfti hnjánum hátt einsog hann hefði horft á myndbandið "How to Jog" og æft sig fyrir framan spegil á meðan. Berhöfðaður á trimmgalla fór hann svona um í hverfinu að hverju húsi og um varirnar lék þetta einstaka sælubros einlægrar gleði sem við sjáum annars bara á börnum um jólin, á þroskaheftum og Sigfúsi Sigurðssyni. Sannur vitnisburður um djúpan, fölskvalausan fögnuð og ósk um það sama til allra. Svo kom hann að dyrunum hjá mér, stansaði örskots stund og lét Fréttablaðið detta inn um lúguna. Ég hafði greinilega verið of fljótur að fagna.
miðvikudagur, ágúst 27, 2008
Það var nú fallegt
að taka vel á móti handboltalandsliðinu. Ég horf'ði ekki á athöfnina því ég var að skrúfa saman eitthvert IKEA og stundum krefst þess konar skrúfelsi líka 100% einbeitingar. Lúðrasveitin hafði greinilega verið ræst út með skyndingu og vissi varla hvað hún átti að spila svo gamlir 17.júní slagarar voru látnir duga. Og Guðmundur landsliðsþjálfari átti stórriddarakrossinn alveg skilið. Það var hvorki honum að kenna eða forsetanum að ég fór að hugsa um Kattholt meðan Ólafur hnýtti krossinum um hálsinn á Guðmundi. "Feiminn strákur, merktur, með hálsól."
sunnudagur, ágúst 24, 2008
Og svo
kom þessi örlagaleikur íslensku þjóðarinnar. Þetta endaði allt í hálfgerðum bömmer, því að ósigurinn var svo afdráttarlaus og eindreginn. Við gleymdum því að þetta var svipuð meðferð og Spánverjarnir höfðu mátt þola af Íslendingum. Það sannaðist hið fornkveðna að sínum augumlítur hver á silfrið. Gallinn var eiginlega sá að öll þjóðin reif sig á fætur og svo var þetta bara frekar leiðinlegur leikur. Engin spenna, og munurinn aðeins of mikill. Hvernig hefði hljóðið orðið í mönnum ef munurinn hefði verið til dæmis tvö mörk? Þetta hékk allt á því að Frakkarnir höfðu betri markmann. Eiginlega allt og sumt, svona til að hafa það einfalt. Ég vaknaði vitanlega í morgun en var orðinn leiður á þessum leik í hálfleik því niðurstaðan var eiginlega augljós. Hins vegar varð bráðskemmtilegt lítið móment þegar átti að hengja gullið á Frakkana: Þeir sneru allir rassinum í verðlaunapeningana. Það þurfti að pota í þá svo þeir gætu snúið sér við til að taka við gullinu. Það var ekki gert landsliðinu til vanvirðu að ég eldaði apaheila í kvöldmat.
laugardagur, ágúst 23, 2008
Það er
komið haust. Ég hef varið deginum í að taka til á kontórnum og í skrifborðinu: Það virðist vera að fasi II í því að koma sér fyrir sé að fæðast: Snyrta og hagræða. Svo margt af því gamla sem flutti með mér hefur einhvern veginn gefist upp eða hætt að passa. Breyta og laga verður sennilega á dagskrá fram undir jól. En sennilega tek ég daginn snemma á morgun eins og þjóðin öll - það er fátt betra en nokkrar skapsveiflur snemma á sunnudagsmorgni. Þó þeir vinni ekki - þjóðin á eftir að frétta af þessu nokkuð reglulega næstu áratugina og það verða reglulega sjónvarpsviðtöl við hetjurnar, þó þeir verði orðnir sköllóttir og gráskeggjaðir. Það mun að minnsta kosti ekki fara fram hjá mér þó ég sofi. Annars hef ég ekki fylgst með neinu af þessum viðburði: Ekki vakað fram á nætur yfir beinum útsendingum á strandblaki karla, allavega. Ég er sagnfræðingur og þeir hafa mestan áhuga á Ólympíuleikunum í Berlín 1936. Eru sumir ennþá að fylgjast með þeim. Og svo var það Munchen, vitaskuld.
miðvikudagur, ágúst 20, 2008
Mér hefur
verið heitt í dag. Það vill lukka til að það er ein mikil vifta í holinu á húsinu mínu, og ef ég opna gluggana og set þetta í gang þá virkar tækið. Alveg svínvirkar og kælir vel niður. En mikið óskaplega er ég feginn að ég skuli ekki hafa lent í því um mína daga að þurfa að reka olíufélag. Margt hef ég mátt reyna en það aldrei og lendi vonandi ekki í því. Þó er aldrei að vita, eins og það er erfitt. Það vantar ekki að þeir sem reka félögin hafa þunnt eyra þegar kemur að verðhækkunum erlendis. En alveg gjörsamlega daufdumbir ef olían lækkar. Það er von að margt sé dýrt á Íslandi - krónan hríðfallandi, rekstrarkostnaðurinn að fara upp úr öllu valdi - aumingja mennirnir að þurfa að standa í þessu.
fimmtudagur, ágúst 14, 2008
Þetta er bara sagnfræði, sko.
Gaman að lesa Moggann. í dag. Geir Haarde að tjá sig um grein Vals Ingimundarsonar. Ég er svo sem ekki undrandi þar sem ég hef orðið áratuga reynslu í því að vera að útskýra fyrir fólki hvað sagnfræði sé og hvað sagnfræðingur gerir. En hjá Geir Haarde liggur í orðunum að fyrst þetta sé sagnfræði sé eiginlega ósköp lítið að marka þetta. En það er auðvitað ályktun sem sagnfræðingurin ég er að draga. Hins vegar verð ég að tjá mig um vandræði mín við að gera sagnfræði að lögmætri atvinnu. Vegna verkefna sem komu inn á mitt borð komst ég að þeirri niðurstöðu að mun hagstæðara væri fyrir mig að stofna einkahlutafélag utan um verkið - þá gat ég allavega fært kostnað til frádráttar í staðinn fyrir að borga skatt eins og einstaklingur af verkum mínum. Þetta hefur reyndar verið hægt lengi með því að menn skrá sig á launagreiðendaskrá sem verktakar. Svo ég fór að reyna að koma Söguverkstæðinu ehf. á koppinn. Það kostaði mig tvær ferðir til Reykjavíkur og eina austur á Hellu (ég bý á Selfossi) að koma því inn í höfuðið á mönnum hvað sagnfræðirannsóknir, útgáfustarfsemi og skyld störf væri eiginlega. Eina bótin að ég gat fært kostnaðinn við það sem akstur. Vandinn var sem sé sá að samkvæmt ÍSAT - íslenskri atvinnugreinaflokkun - er sagnfræði ekki á blaði en þó vita menn af einhverju sem heitir starfsemi sögufélaga. Þess vegna er sagnfæði og sagnfræðirannsóknir ekki vinna. Og sá sem ætlar að stofna félag utan um þá atvinnu þess vegna sennilega annaðhvort að gera grín að kerfinu eða hefur fundið einhverja mjög dularfulla leið til að fara í kringum það. Niðurstaðan varð að sagnfræðin féll undir ÍSAT 70.22.0 -Viðskiptaráðgjöf og önnur rekstrarráðgjöf hjá Ríkisskattstjóra, sem hins vegar vakti nokkra kátínu hjá skattstjóraembættinu á Hellu. Er ekki kominn tími til að sagnfræðingar hefji baráttu fyrir því að atvinna þeirra teljist lögmæt? Þegar upp er staðið hef ég komist að því að í því umhverfi iðnaðarmanna sem ég bý í verður allt auðveldara ef ég er verkstæði - hér skilja menn strax hvað er gert á verkstæðum. (Nýsmíði, viðgerðir og þess háttar, já.) Ég er ekki einn í syndinni, því Sögusmiðjan ehf. er líka til en skilgreind allt öðruvísi samkvæmt ÍSAT og ef til vill hafa fleiri valið þennan kost. En það er kominn tími til að sagnfræði verði skilgreind sem vinna.
miðvikudagur, ágúst 13, 2008
Það er margur skaðinn og váboðinn
eins og sjá má í þessari frétt í Suðurlandi frá 10. apríl 1954: Fréttabréf úr Biskupstungum.
SKAÐAR.
SKAÐAR.
"Nokkrir skaðar hafa orðið á gróðurhúsunum hér í vetur. Í suð-vestan ofviðri fauk allstórt gróðurhús hjá Jóni Vídalín í Laugarási og gjöreyðilagðist. Í snjóþyngslunum miklu á dögunum féllu nokkur gróðurhús að meira eða minna leyti og urðu menn fyrir allmiklum skaða á húsum og plömtum. Auk þess brotnaði þá allmikið gler. - Það tekur því varla í þessu sambandi að minnast á minkinn, sem öðru hvoru gerir gerir innrás í hænsnahúsin og gjöreyðir hænsnunum, þetta er í raun og veru ekki fréttnæmt lengur, þannig mun það vera um gjörvallt Suðurland hvað þessum mikla vágesti viðvíkur. Að lokum má geta þess að Karlakór Biskupstungna, sem starfað hefur nær óslitið í nær 30 ár, fór til höfuðborgarinnar á dögunum og söng í útvarp á bændavöku. "
Og eru þá upptalin óhöpp Tungnamanna í þessari frétt. En fyrir mig tekur því varla að minnast á borgarstjórnarmálin í Reykjavík, þetta er í raun og veru ekki fréttnæmt lengur. Gísli Marteinn hefur fattað að hann þarf líklega að lesa og læra betur: Fyrst að klára námið í HÍ og svo ætlar hann til Englands til að læra borgarmálefni - af Englendingum, af öllum mönnum. Og hvað hina varðar væri kannski rétt að biðja menn um að koma annaðhvort með atvinnu skemmtikrafta eða alvöru stjórnmálamenn í þetta rugl. Hvað sem menn segja um Spaugstofuna, þá hefur hún kennt mönnum eitt: Það er best að gera bommerturnar á sumrin.
Og eru þá upptalin óhöpp Tungnamanna í þessari frétt. En fyrir mig tekur því varla að minnast á borgarstjórnarmálin í Reykjavík, þetta er í raun og veru ekki fréttnæmt lengur. Gísli Marteinn hefur fattað að hann þarf líklega að lesa og læra betur: Fyrst að klára námið í HÍ og svo ætlar hann til Englands til að læra borgarmálefni - af Englendingum, af öllum mönnum. Og hvað hina varðar væri kannski rétt að biðja menn um að koma annaðhvort með atvinnu skemmtikrafta eða alvöru stjórnmálamenn í þetta rugl. Hvað sem menn segja um Spaugstofuna, þá hefur hún kennt mönnum eitt: Það er best að gera bommerturnar á sumrin.
mánudagur, ágúst 11, 2008
Kvöldstund
með kyrrð og ró.. Ég sit við tölvuna, Loppa liggur hringuð upp á skrifborðinu, þurrkarinn malar og svalur síðsumarkvöldblær læðist inn um gluggann. Það er eitthvert rifrildi í sjónvarpinu: Sennilega ein af þessum venjulegu hamingjusömu fjölskyldum. Af hljóðunum að dæma er kona að tala við manninn sinn eins og óþekkan strák. Þær gera talsvert af því, blessaðar. Skammi mig að ég nenni að hlusta á það. Þetta hefur verið gott sumar hjá okkur báðum. Ég hef lengst farið í norður upp að Skálholti: Lengst í austur að Hvolsvelli. Og til Reykjavíkur. En mér hefur bara liðið svo ansi vel heima hjá mér. Fyrir utan allt það sem ég er búinn að koma í verk. Ljósritin liggja í bunkum og í snyrtilegum möppum til að grípa í á þessum löngu vetrarkvöldum sem ég er svo vel gíraður inn á. Ég er að vísu ekki farinn að mála ennþá: Útimálning bíður næsta sumars og ég gríp kannski í eitthvað innan dyra í vetur. Kannski í desember. Þá verð ég búinn með flóðin í Ölfusá. En við Loppa höfum átt ansi gott sumar, þó við höfum hvorugt farið langt.
miðvikudagur, ágúst 06, 2008
Sólskinsdagar enn

og ég er farinn að rekast á kollegana í búðunum. Það eru fyrstu merki um að skólinn muni byrja bráðum. Krakkarnir sem afgreiða mig eru farin að spurja hvenær hann byrji - reyndar var ein manneskja sem vissi það betur en ég í dag í einni búðinni sem ég fór í. Nema í Bónus. Ég efast um að krakkarnir á kössunum þar séu enn komin á fjölbrautaraldur. Ég hef aldrei séð eins mikið af erfiðu fólki saman komið í einni búð eins og í Bónus í dag. Frekar kerlingar að ryðjast um og reka í mann kerruna - frá með þig, ég er að versla hérna! Fólk með inngrónar grettur í andlitinu. Nefið slútandi fýlulega niður á vör og vörin niður á bringu eins og Grýlu er lýst einhvers staðar í gamalli sögu. Allir að troðast. Það er greinilega engin gleðistund að versla í Bónus. Engin furða þó ég fari stundum í Bónus í Hveragerði til að losna við kerruskarkið, auk þess sem þar er enginn að troðast á stæðunum. Og svo þessar risastóru hyldjúpu kerrur, maður. Það þarf engan að undara þó ég leiti út fyrir bæinn og horfi á Ölfusá renna. Stillta í sínum farvegi og engin flóð í dag. Alltaf ákveðin hugarró að sitja einhvers staðar þar sem eru tré og rennandi vatn. Og leyfa sér enn um sinn að vaka frameftir yfir bóklestri - óþýddum reyfara, að þessu sinni.
sunnudagur, ágúst 03, 2008
Næði
er yfirskrift þessara daga það sem af er. Við höfum slakað á, hafð það ekki gerst áður á þessum bæ, grillað úti - kebab úr kótelettum með rauðlauk, papriku og tómötum á spjóti - lesið, fórum í dag á Fjöruborðið og fengum okkur humar. Sáum Álfa- trölla og norðurljósasýninguna. Gaman að henni. Við Loppa höfum legið í letinni eins og við erum löng til, teygt úr okkur, sleikt á okkur lappirnar og lesið einhverja þá hraksmánarlegustu þýðingu á nokkurri bók sem ég hef opnað til margra ára. Tré Janissaranna, heitir hún, og einhver gæti til dæmis sagt þýðandanum að það er til eitthvað sem heitir orðabók. Svo væri líka alveg í lagi að læra bæði tungumálin, það sem þýtt er úr og á, auk þess sem illa lesin próförk bætti ekki úr skák. Bókin er góð en ég þurfti stundum að bíta á jaxlinn við lesturinn að henda henni ekki frá mér. Nýasti munaður heimilisins er að kreista sítrónu, setja í glas og fylla með vatni og klaka til að drekka úti í garði. Heilsusamlegt, frískandi, einfalt og ódýrt svo sem vera ber. Við Andri höfum verið að ræða áhættuhópa: Samkvæmt statistík er hann í áhættuhópi að verða fjöldamorðingi. Samkvæmt lífsreynslu er ég í áhættuhópi að rekast á einhleypar konur sem vilja eignast hús á Spáni. Það eru nokkrar á sveimi hér og þar um vefinn og víðar að leita. Ég sá einhverntíma vefsíðu af svona pari sem hafði tekið saman og flutt til Spánar. Hún í óða önn að rækta blóm, hann sat í blómahafinu, gugginn með útstæð eyru og var vansæll í framan. Ég er enn ekki nógu aldraður og einmana til að enda sem garðálfur hjá einhverri blómakerlingu í öðru landi. Auk þess sem ég hef asnast til að læra ekki golf. Ég er alltof einþykkur sérvitringur til að láta teyma mig um á eyrunum.

