miðvikudagur, júlí 30, 2008

Alltaf er eitthvað

að starfa hjá okkur þessum önnum köfnu framkvæmdastjórum. Söguverkstæðið ehf. er komið á fyrirtækjaskrá og hin eftirsótta kennitala er komin í hús. Eftir er að skrá á launagreiðendaskrá og fá vsk númerið og opna bankareikningana, en á meðan getum við enn gripið í að taka saman annál flóða í Ölfusá og tala við gamla karla sem finnst gaman að fá sagnfræðinga í heimsókn. Gamlir kallar voru einu sinni bókasafnið áður en bækur voru fundnar upp. Svo þarf auðvitað að að vinna í ímynd fyrirtækisins. Hanna lógó, fara í branding og tala við ímyndarhönnuð, prenta boli og einkennisbúninga, kaupa jeppa og flotta skjalatösku til að vera sannfærandi og fara svo í forstjóraleik. Eins og allir alvöru ehfsjéffar gera. Klína lógóinu á eins marga veggi og hægt er. Útnefna stjórnarformanninn sem kynningarstóra og senda hann út einhverja nóttina með spraybrúsa og lambhúshettu. Hver var að tala um að það þyrfti að gera eitthvað annað? Eins og afköst til dæmis?

laugardagur, júlí 26, 2008

Letidagur


sem er alveg ágætt eftir ös liðinnar viku. Ekki mikið starfað í fyrirtækinu: Framkvæmdastjórinn skúraði gólfið en stjórnarformaðurinn (Andri) fór í bæinn í bíó. Hvað skyldu framkvæmdastjórar fyrirtækja borga sjálfum sér fyrir skúringar á húsnæðinu? Ég sé fyrir mér ofurlaun og starflokasamning í hillingum. Loppa svaf samkvæmt venju. Ég ætlaði að grilla í kvöld en af því Andri var í bænum nennti ég því ekki fyrir mig einan. Var annars með góðar hugmyndir á pinnunum. Ég hef samt tekið eftir því undanfarið að næturnar eru orðnar dimmari og ég hef verið að hugsa hversu óhemju mikið hefur verið gert hérna þetta sumarið. Þó ég hafi enn ekki komið því í verk að mála bleika vegginn, en sumarið er heldur ekki búið. Ég hef gert allt sem ég setti mér fyrir (nema að mála andskotans vegginn) og bætt talsverðu við, fyrir utan verkefnin sem ég fékk í hendurnar. Svo í kvöld er mér óhætt að láta eftir mér að hanga, lesa reyfara og rabba við köttinn samkvæmt hefðum heimilisins.

föstudagur, júlí 25, 2008

Nóg að gera

í Feðgabyggð. Gerði verksamning og í framhaldi af því stofnuðum við feðgarnir fyrirtækið Söguverkstæðið ehf. Ef einhver er með bilaða sögu höfum við kannski áhuga á málinu, spurning um réttingar og ryðbætur á gömlum sögum. Ævisögur velkomnar, nema frá konum með fortíð. Þær eru því miður flestar útjaskaðir varíantar við setninguna "Ég svaf hjá". Svo dagarnir hafa farið í að snúast í kringum þetta vesen, og svo vindum við okkur á fullri ferð í að kanna flóð í Ölfusá.

sunnudagur, júlí 20, 2008

Slakað á

hér í dag. Ég er samt ekki mjög þreyttur. Gestir litu inn, og ef einhver hér í bæ hefur séð konu með hvítt dýr í bandi skal upplýst að það var ekki ísbjörn heldur hvít hvolpafull tík. Tíkin og Loppa hittust ekki, en Loppa kom heim þegar tíkin var nýfarin og við fórum upp í svefnherbergi og hvíldum okkur, lásum Fornaldarsögur Norðurlanda, sleiktum á okkur tærnar og möluðum. Loppa sá þó aðallega um táasleikjurnar, ég um lesturinn.

laugardagur, júlí 19, 2008

Góður laugardagur.

Fyrst fór Andri með félögunum í skrýmsladrápsleiðangur upp á Skeið, Frelsisher Flóa og Skeiða er virkur enn einu sinni, en karlinn dólaði heima, opnaði út í garð og hlustaði á Linton Kwesi Johnson, sem er kannski ekki alveg í anda úthverfis á Selfossi á laugardegi á miðju sumri. Um kvöldið grillað með fjölskyldunni. Allt gekk upp, bæði kjöt og eftirréttur. Í dag mælir Feðgabyggð með jógúrtís (ab vanillujógúrt, 1 l. ) með þeyttum rjóma (1/4 ltr.)og hlynsírópi, (eftir smekk) sem gefur frískandi bragð á móti grilluðum ananas með kanilsykri - og svo getur verið vinsælt hjá krökkum að skera skurð á hýði á banana, stinga súkkulaðibitum undir hýðið - ég mæli með þremur bitum á hvern banana - og skella á grillið, svona með. Og þegar kartöflur eru nýjar eru þær sælgæti með grilluðu lambakjöti og dugir alveg að sjóða þær. Ef til vill væri gaman að smjörsteikja þær svolítið. Þó ég hafi ekki gert það í dag. Loppa var hrædd og faldi sig, en gestirnir voru varla farnir þegar hún skreið mjálmandi fram úr felustað sínum. Og þurfti talsvert af strokum, ást og umhyggju. Eins og hún væri hrædd um að gestagangurinn væri henni að kenna. En hún jafnaði sig furðu fljótt. Líkllega verður sest í ruggustólinn úti og drukkinn einn Kaldi með Loppu, svona í kvöldhúminu og horft á sólarlagið.

sunnudagur, júlí 13, 2008

Þar loksins

kom rigning. Og ekki fúlsa við henni, heimurinn þurfti á henni að halda. Og allt tekur við sér eins og veröldin hafi farið í bað. Í gær fórum við feðgar að prófa ferðaþjónustu og svona að líta á hvernig er að ferðast í Rangárþingi í rigningu - kíktum upp að Keldum, á Hvolsvöll, litum á Sögusetrið og Kaupfélagssafnið. Enn er samt eitt sem þyrfti að athuga í sambandi við íslenska ferðaþjónustu, en það er maturinn meðfram vegunum. Þar er hamborgarinn og frönsku kartöflurnar enn í hávegum. Kannski hægt að krækja í sæmilegan disk með lambakótelettum í sjoppum. Ef til vill er ekki grundvöllur fyrir slíku: Allir matseðlar á íslenskum veitingastöðum meðfram vegum breytast fljótlega í hamborgara og franskar eða djúpsteikta ýsu, hversu metnaðarfullir sem þeir eru í upphafi. Sá sem ferðast um vegi hér á landi þarf aðeins að hugsa um eitt: Matur er orka, éttu. Og í dag var gott að vera heima, taka svolítið til, kúra uppi í rúmi með Loppu, lesa, hlusta á rigninguna á þakinu og svo að taka til við skriftir þegar leið á daginn. Sem er alls ekki það versta sem er hægt að gera um helgar.

fimmtudagur, júlí 10, 2008

Hér

er nóg að gera. Andri er að leggja lokahönd á nafnaskrána við Hundrað ára afmælisrit Búnaðarsambands Suðurlands og er að læra talsvert um sögu og landafræði héraðsins. Svo sem hreppa, bæi og merkilega karla. Auk þess búinn að skrá sig í nám næsta vetur. Hvort tveggja er af hinu góða. Þó ég furði mig á því að þessi leiðinlega handavinna hefur ekki fælt hann frá faginu. Ég er að lesa yfir hjá honum og tína upp heimildirnar sem ég hef í höndunum. Loppa leggur enga stund á sagnfræði en er hins vegar afar áhugasöm um verklega líffræði, sem tengist bæði smádýrum en líka blómum. Hún er afar blómelskur köttur ef marka má hvað hún dregur inn af fíflum, biðukollum og laufblöðum. Það furðar sig reyndar enginn á þó ung kvendýr dragi eitthvað á eftir sér af fíflum, en hennar eru gulir. Deadline á morgun í nafnaskránni og öðrum yfirlestri, svo getum við farið og gert okkur eitthvað til skemmtunar.

laugardagur, júlí 05, 2008

Feðgabyggð


fer ekki fet og nýtur þess í staðinn sem út-hverfalíf hefur upp á að bjóða. Föstudagurinn var fullur af umferð og ekki viðlit að komast út úr hverfinu eftir klukkan þrjú eða svo. Dragaldamenningin á fullri ferð, hestakerrur, tjöld, húsvagnar og jafnvel svifflugur aftan í bílunum. Litlar borgir þjóta upp á skipulögðum móafylleríisvæðum - hey, það var mín kynslóð sem fann upp móafylliríið! Það var liðið sem á eftir kom sem skipulagði það. Í öllum þessum tjaldbæjum er alltaf verið að spila ABBA. Ég hef grun um að ástæðan fyrir þessum útilegum sé að það er búið að banna að spila ABBA í þéttbýli og aðdáendurnir verði að fara út í sveit til að sleppa sér lausum. Og til að kóróna allt er unglingum - og einhleypum konum - bannað að tjalda með fullorðnum. Þetta lið kann móafylliríið og veit um afleiðingarnar. En er vel útbúið í það. Við feðgarnir grillum okkur svínalundir og höfum heimagerðan jógúrtís með grilluðum ananas í eftirmat. Kannski vit að setjast út í kvöldsólina í ruggustólinn og hlusta á Otis Redding - verst að rommbrúsinn frá breska hernum var tómur.

miðvikudagur, júlí 02, 2008

Bæjarferð

Feðgabyggðar í dag. Rúmfatalagerinn, Hagkaup, Góði hirðirinn, Útsölumarkaðurinn, Nexus, IKEA. Fengum allt sem við ætluðum okkur. Andra vantaði gardínur, mig buxur. Og svo vantaði mig líka nýjan sjónvarpsbekk, því sá gamli skemmdist í skjálftunum. Siðan heim til að taka til í snatri, von á gestum um kvöldið. Sem komu eftir að búið var að þrífa. Nóg að snúast. Ekki verra að eignast loksins disk með Otis Reading - Sitting on a Dock of the Bay - og ekta breskan rommbrúsa úr stríðinu merktan S.R.D - Seldom reaches destination - og þessi var enn með upprunalega tappanum í.