laugardagur, mars 31, 2007

Búinn fyrirlestur

og gekk vel. Ég er mjög ánægður og fólkið væntanlega líka, því hann var vel sóttur. Og svo er komið páskafrí með tilheyrandi og ég byrja á að halda upp á það með því að viða að mér bókum, liggja í leti og lesa. Eina bók sérstaklega sem mér var bent á í gærkvöldi og hún lá á bókasafninu þegar ég kom við þar í dag. Þegar bækur koma til manns með þessum hætti á að lesa þær því þær vilja vera lesnar og ég hef þegar fundið mikilvægar upplýsingar - ekki um drykkjuskap þó hún sé full af sögum um fyllibyttur heldur um þátt í sögu Flóááveitunnar sem mér hefur alltaf þótt vafasamur en samt haft með, eiginlega af skyldurækni, og hefur með að gera meintan áhuga páfans á fyrirbærinu. (Takk fyrir ábendinguna, Gunnar Marel). Annars fjallar bókin aðallega um drykkjuskap ýmissa opinberra starfsmanna sem tengdust íslenskum fræðum og er að því leytinu fróðleg. Ég reyni að forðast að fjalla um nafngreindar fyllibyttur í mínum fræðum, það færir söguna á persónulegt plan, en þarna eru ýmsir góðir punktar sem benda á nýjar slóðir.

miðvikudagur, mars 28, 2007

Vinna á fullu

fundur eftir vinnu og þar á eftir smáspjall í útvarpinu í beinni. Það eru víst orðin einhver ár síðan ég hef verið þar - á tímabili kom ég yfirleitt fram svona um það bil einu sinni á ári. Aldrei svo merkilegur að komast í Ríkissjónvarpið - ekki það að ég sé að reyna það. Lenti einu sinni í sjónvarpsþætti á annarri stöð - það fannst mér fyndið. Var með bilaðan hljóðkút á bílnum þá og þurfti að leggja langt frá upptökustað til að trufla ekki útsendingu þegar ég keyrði í burtu. Bráðum verð ég líklega tekinn í einn af þessum sjónvarpsþáttum sem fjalla um skrípakalla og undarlegt fók á landsbyggðinni.

þriðjudagur, mars 27, 2007

Af konum og bláum bóluglösum.



Um kvenfólk og brennivín
Fyrirlestur verður í Húsinu á Eyrarbakka fimmtudagskvöldið 29. mars nk. kl. 20.30.
Erlingur Brynjólfsson sagnfræðingur flytur fyrirlestur er nefnist Um kvenfólk og brennivín.Fyrirlesturinn fjallar ekki um drykkjusögur eða leit að drykkfelldum konum aftur í tímann, heldur um vöruna sjálfa, viðhorf til hennar og hvernig hún endurspeglar átök í samfélaginu, átök milli kynjanna, áhrif áfengis á kynhlutverk og samskipti kynjanna í ljósi sögunnar. Einnig verður fjallað um áhrif bindindishreyfinga á líf kvenna um aldamótin 1900 og breytingar á réttindum kvenna í tengslum við áfengisnotkun, hvers vegna sérstakt kvennavín var bruggað á Eyrarbakka fyrr á tíð, hvernig konur notuðu vín og sitthvað fleira. Erlingur Brynjólfsson sagnfræðingur er sögukennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands og hefur jafnframt ritað um ýmsa þætti í sögu héraðsins, meðal annars "Baráttuna við Fjallið", sögu Kaupfélags Árnesinga.
(Meðfylgjandi ljósmynd sýnir "Bláa bóluglasið" fornan brennivínspela sem fjallað verður um í fyrirlestrinum. Skúli Helgason fann þennan pela í tóft sæluhúss við Húsmúla skammt frá Draugatjörn og hefur innihaldið eflaust "yljað köldu brjósti hrakins ferðalangs" sem þarna hafði gist. Oft var fyrrum að ungir piltar væru sendir með "bláa bóluglasið" á mannfagnaði til að eiga auðveldara að brjóta ísinn í viðræðum við hitt kynið. )


Fréttatilkynning frá Byggðasafni Árnesinga.

sunnudagur, mars 25, 2007

Letihelgi

á fullu. Ligg og les American Gods - aftur. Lafði Hermína strýkur sér aftur og aftur upp að myndinni af Neil Gaiman. Ég er ekki vitund afbrýðisamur - hann er bara spjald úr pappa, það er ég sem strýk henni á vömbinni hvað svo sem hún er að fantasera. Læt hverjum degi nægja sín húsþrif, það er hvort sem er vika fram að páskafríi. Sofa-éta-lesa helgi. Alls ekki slæmt. Eins og eitthvað liggi á. Mig er hætt að dreyma fólk og atburði úr fortíðinni. Hætti þegar ég hafði orð á að ég væri orðinn leiður á því. Núna er það núið. Ekki slæmt að fljóta um í einhverju rólegu núi-það er allavega hvíld í því, og ef maður hvílist án þess að vera þreyttur - þá er safnað kröftum.

laugardagur, mars 24, 2007

Það er

hreint ekki svo vitlaust að láta götur heita eftir persónum úr sögum Laxness. Ef svo fer fram sem horfir verða innan tíðar götur í Mosfellsbænum sem heita Butraldastígur (eða Brunnmígsholt) Nasavangur, Jústsgata, Jódínusarholt, (eða bara Álfberg) Þríhrosshagi og Umbavegur. Svo ekki sé minnst á Júngkærabraut. Það verður af nógu að taka....

fimmtudagur, mars 22, 2007

Þar loksins

kom að því hjá Ómari &co. Hægri grænn íslandsflokkur. Það verður gaman þegar landbúnaður og sjávarútvegur fer að þjóna ferðaiðnaðinum. Þá geta bændur handmjólkað baulur sínar við vel malbikaðan þjóðveginn og haldið þeim undir naut ferðamönnum til gleðiauka. Látið fréttamenn að sunnan gera um sig heimildamyndir. Og sjómenn geta dregið ýsur á færi í fjöruborðum á sumrin meðan ferðamenn smella af. Þetta er nú glæsilegt. Ég er að hugsa um að fá mér mynd og horfa á Castle in the Sky.

mánudagur, mars 19, 2007

Varstu að

segja bankanum þínum upp? Dömpaðirðu þessum einstaka ástmanni/konu? Það er meira hvað er gert úr þessu meinta ástarsambandi einstaklings og banka. Hvað á maður að segja? Nei? Ég ætla að halda þessu viðhaldi inni? Allavega -þar sem Andri er annars vegar er engu líkara en að bankinn sé ástsjúk fyrrverandi kærasta. Sendir öðru hverju gjafir og bréf með gylliboðum. Það er meira en ég get sagt. Ég er líklega orðinn of gamall til að vera spennandi. Ætla ég að segja bankanum mínum upp? Nei, ég ætla bara að nota svarta hauspokann sem ég fékk í jólagjöf frá honum og halda áfram að hjaxast með honum meðan ég á eitthvað eftir.....

laugardagur, mars 17, 2007

Laugardagur

til leti. Snjórinn, éljagangurinn og veðrið almennt gerir daginn upplagðan til að liggja og lesa fantasíubókmenntir. Þessar ágætu bókmenntir þar sem allir eru alltaf að borða heita kássu og nýbakað brauð á krám, svolgra í sig öli og drepa skrýmsli. Að loknum erfiðum degi í skrýmsladrápinu er farið til heilara, fólk fær þurrar buxur og sokka og er ekki einu sinni með harðsperrur eftir að hafa banað ókindunum. Og svo er kneifað öl og sagðar sögur við mannhæðarhátt eldstæði. Svona eiga bókmenntir að vera. Svona Rasmus klumpur fyrir fullorðna. Það skal upplýst að Frelsisher Flóa og Skeiða er í neyðarútkalli vegna skrýmslafaraldurs uppi á Skeiðum - svo það er eins gott að Andri var búinn að setja buxurnar sínar í þvott áður en hann fór. Hmm...ég á einhvers staðar alvöru öl. Á flösku. Ekki þetta kálfahland í dósum, þennan selst-sem-bjór í niðursuðudós.

Fjör í Feðgabyggð.

Andri kom úr bænum í dag. Og þegar hann kom heim fattaði hann að hann hafði gleymt töskunni sinni með óhreina þvottinum í rútunni. Við út á rútu - og bílstjórinn sagðist hafa hent töskunni í Hvolsvallarrútuna. Við austur á Hvolsvöll. Það kostaði svolítið af lögbrotum á leiðinni, en öll á réttum tíma og réttum stöðum. Við náðun Hvolsvallarrútunni á Hvolsvelli, sem var fyrirsjáanlegt, en þar va rengin taska. Aftur á Selfoss. Fundum töskuna á Selfossi. Fyrirsögn í dagblöðum innan tíðar: Óður sagnfræðingur myrðir rútubílstjóra. Selfoss - Hvolsvöllur -Selfoss á einum klukktíma er í raun ekki eins mikið lögbrot og ég hélt. Rétt náðum að skjótast heim í matarbita, því ég átti pantaða miða á Draum á Jónsmessunótt í uppfærslu Flóaleikhússins austur í Þingborg. Náðum þeirri sýningu og ekki verra að eyða kvöldinu með Shakespeare og Flóamönnum. Sem eru hvort sem er annaðhvort gamlir og núverandi nemendur, skyldmenni og gamlir sveitungar eða allt þetta. Mig langar að setja upp leiksýningu þar sem ættingjar Guðna Ágústssonar fara með öll hlutverkin. Það er í fyrsta lagi auðvelt því frændgarðurinn er stór og þar að auki er það eina sem þarf að setja einhvern úr þeirri fjölskyldu upp á leiksvið og þá gerist eitthvað sem vanalega er drepfyndið. Þeir sem til þekkja sjá líklega einna best hvað það er sem heldur Guðna uppi í pólitík: Það er ekki stjórnmálamaðurinn, það er leikarinn. Hm tja...það gæti ef til vill kryddað sýninguna að hafa nokkur eintök af tíkarsprengsættinni með....það leynast trúðar þar inn á milli.

miðvikudagur, mars 14, 2007

Ferð

í bæinn að hitta lækninn minn. Eftir margar og mismunandi mælingar tókst að finna handa mér ásættanlegan blóðþrýsting - undir 150 - ég er nefnilega með háþrýsting sko..og læknirinn minn var með mjög traustvekjandi kvef. Skroppið á garðana að hitta Andra, eftir það í Nexus og svo heim. Ágætt að eiga frídag og ég er að velta upp ýmsum spennandi möguleikum í lífinu núna. Sé til hvað verður. Gæti verið að lífið mitt þoli breytingar, þó ég hefði ekki haldið það áður. En í kvöld hringum við okkur upp, ég og kötturinn, og lesum saman ævintýrabókmenntir meðan regnið lemur rúðurnar. Hvað er hægt að hafa það notalegra.

sunnudagur, mars 11, 2007

Ég hef

ræktað í mér letingjann í dag. Og þó. Sagnfræðirannsóknir eru sumar þannig að þær er hægt að stunda í rúminu og ég hef verið að lesa ævisögur góðbænda og stórmenna að segja fylliríissögur af sjálfum sér. Það þýðir að ég hef komist að því að sá sem segir fylliríissöguna er alltaf minnst fullur af öllum. Eða heldur að hann sé það. Og svo hef ég komist að því út á hvað ævisögur karla ganga: Þær segja allar "Ég gerði." Ég gerði og ég gerði og ég gerði og ég gerði og svo eignaðist ég kerlingu og svo gerði ég og gerði og gerði. Þó ekki geri allir eins og Björn Eysteinsson, sá góði bóndi í Húnaþingi, sem bað kunningja sinn um að senda sér konu og launaði greiðann með því að senda vini sínum hrút í staðinn. Líklega eins konar kaups kaups. En það sýnir líka hvað góð kona er mikils virði og mikill stólpagripur. Þó ekki sé hún á við belju í verðgildi. Ævisögur kvenna eru hins vegar "Hún gerði." Hún gerði, hún var, hún var, hún var, og hún gerði það með og gerði það líka. Þær eru sem sé oftast í þriðju persónu og ekki sjálfsvæisögur. Og þær segja sjaldan af sér fylliríissögur. En á hinn bóginn hef ég bara svona notið lífsins, horft á veðrið líða hjá og sé nokkra starra sem hafa tekið sér fari með lægðinni hingað. Lafði Hermína getur þá tekið til við eina af sínum uppáhalds tómstundaíþróttum: Athugun á atferli og stofnstærð lítilla farfugla. Í vísindaskyni, að sjálfsögðu.

laugardagur, mars 10, 2007

Hverjum degi

sinn skammt. Ég bíð fram að hádegi með að taka ákvörðun um hvað ég læt í daginn: Bíltúr út í sveit eða tiltekt heima? Um hádegið er farið að þykkna upp, svo ég ákveð að fylla líf mitt með hreinlæti og tiltekt í dag. Sagnfræðineminn dvelur sunnan fjalla, og ég er í raun enga stund að taka til þeirra þrifa sem ég ætla mér í dag. Svo get ég legið og horft á veðrið versna. Verst að hafa ekki sænskan reyfara núna. Ég bíð eftir bókinni þar sem Kurt Wallander myrðir Henning Mankell fyrir að vera leiðinlegur við sig. Fléttað inn í söguna fúllyndum gömlum bónda sem býr einn, gömlum hjónum sem hrökkva upp af, einstæðri móður með framavonir, spúkí náungum frá Eystrasaltslöndunum og sagan er klár. En einu sinni áttu menn sjömílnaskó. Fólk fór yfir sjö fjöll og sjö höf. Sjö svanir sungu fyrir Hlyna kóngsson, og svo varð það geitin og kiðlingarnir sjö, Mjallhvít og dvergarnir sjö, Guðmundur í Byrginu og konurnar sjö sem kærðu hann, og Glókollur sagði sjö sinnum sjö eru fjörutíu og níu.....Ég á nóg af góðum kvikmyndum að horfa á og bókum að lesa meðan vonda veðrið gengur yfir.

fimmtudagur, mars 08, 2007

Heyrðu kunningi


hafðu það ekki eftir mér, en mikið ári er hún lítið liggileg þessi. Þetta er setning sem ég þurfti að fara með í leikritinu um Þuríði formann og Kambsránið í fyrravetur. Þórður sýlsumaður segir þetta eftir að hafa yfirheyrt Þuríði formann. Og ég verð að játa að ég hugsaði það sama þegar ég sá loksins hina frægu umdeildu forsíðumynd af fermingarbæklingi Smáralindar. Er ég svona klaufskur, eða þarf ekki að minnsta kosti að byrja á því að snúa krakkanum um 90 gráður ef nauðgun á að fara fram? Þið sem eruð að hneykslast á þessu verðið að afsaka, en það þarf miklu meira en þetta til að kveikja á barnaníðingnum í mér. Ég verð að vísu að taka fram að ég hef ekki reynslu af því að nauðga unglingum. Og að ég umgengst unglingsstelpur - að sönnu aðeins eldri - í vinnunni á hverjum degi og það er það sama uppi á teningnum þar. Sér ekki hver maður að það sem vantar fyrir framan hana er skúringafata? Vertu velkomin í heim neyslunnar, stúlka mín, þar sem þú þarft að streða baki brotnu fyrir munaðinum, borga há þjónustugjöld, okurvexti og verðtryggingu af íbúðaláninu þínu og bílaláninu þínu og kemur út á endanum á slétta núllinu sem þú byrjaðir á, meðan bankarnir stinga af úr landi með aurana sem þeir mjólkuðu út í þessu hagstæða efnahagsumhverfi. Velkomin í heim fullorðinna, stúlkukind, og finndu þér aukavinnu í skúringum með skólanum strax, ekki mun af veita eins og launajöfnuðurinn er. Þessi mynd segir mér "Get real" og ekkert annað en það. Farðu að bogra núna, því það er það sem þú munt þurfa að gera hvort eð er og svo munu stjórnmálamenn fullvissa þig um það á fjögurra ára fresti að þér líði alveg ofsalega vel.

Auðlindir þjóðareign?

Því miður. Mér er alveg sama hvernig þessir tveir stjórnmálaflokkar reyna að klóra yfir misvirðingu við stjórnarskrána, þegar gengið var á mikilvægt ákvæði sem þjóðinni var ætlað að treysta á - en þegar á reyndi var það ákvæði lítils virði. Og ákvæði eins og þetta er ekki síður hægt að fótumtroða og hártoga, því það eru engin grundvallarsjónarmið til um það hvort þjóð geti átt eignir. Og ef eitt ákvæði hefur verið gert marklaust, er hægt að ganga á önnur. Og eftir það sem hefur gengið á varðandi beitingu forseta á því ákvæði get ég rétt ímyndað mér hvað verður tekið mikið mark á þessu. Ég bít ekki á þennan krók. Og nú hefur eina framboðið sem ég taldi standa í veruleikanum dregið sig til baka. Þar fór sá veruleiki fyrir lítið. Er enginn með lappirnar á jörðinni þessa dagana? Og nú hótar Straumur-Burðarás að fara úr landi ef ekki verði gert eins og þeir segja. Hver er hissa á þessu? Peningar eru ekki bundnir þjóðlegum tryggðaböndum - þeir fara þangað sem best er búið í haginn fyrir þá. Ísland er jaðarsvæði í efnahagskerfi heimsins, og jaðarsvæði eru alltaf mjólkuð og skilin eftir fátæk. Far vel. Og takið þetta þjóðareignarlýðskrum með ykkur.

þriðjudagur, mars 06, 2007

Það

lýsir líka mætavel vandamálum í pólitík nútímans að menn hafa ekki hugmynd um hvert þeir eru að fara og hafa aðeins óljósan grun um að þeir muni einhverntíma þurfa að komast eitthvað. Samanber þessa frétt um veginn sem engan vantar en þarf samt að vera þarna. Og framsóknarmenn ættu að vera vel minntir á að þessi vegur var kosningaloforð - hvenær aftur? Fyrir fjórum eða átta árum? Eru menn nú hættir við tvöföldun Suðurlandsvegar? Var ekki verið að berjast í ferjuhöfn í Bakkafjöru, til þess að þagga niður í Árna Johnsen og hans glapræðistunnel gegnum eldjallasvæði til Eyja? Og hvað er nú orðið af plönunum um nýja Ölfusárbrú? Voru ekki allir spekúlantar landsins að kaupa land austan við Selfoss til að græða á? Eins og við Flóamenn vitum það ekki að það er ekki gull í mýrinni - sama hvað við segjum spekúlöntum að sunnan það oft. Það er eins og hvert neyðarópið af öðru glymji i eyum...hjálp! Við þurfum að komast í burtu úr þessu kjördæmi! Og það helst fyrir kosningar svo við þurfum ekki að búa við Árna Johnsen aftur! Bara veg eitthvað í burtu!

er það fréttir ennþá að fólk hlaupi milli flokka eða segi sig úr? Eins og mér standi ekki slétt og nákvæmlega á sama. Þetta flokkaflakk og flandur lýsir ósköp einfaldlega ástandi sem best væri fyrir menn að viðurkenna: Að stjórnarandstaðan stendur uppi lappalaus, hefur enga pólítíska löpp undir sér og fálmið og handapatið á þeim líkast því að verið sé að rýja svarta rollu í myrkri með ryðguðum vasahníf. Viðurkenning vandans er sem sé 60% af bata. Þeim væri fyrir bestu að leggja upp laupana, eða í það minnsta að leggja mál sitt í hendur fagmanna. Þar sem hugmyndafæðin er með þvílíkum fádæmum að það eina sem menn geta er að smala saman liði sem "flokkurinn hefur yfirgefið" og safna því saman við að berja hausnum utan í Kárahnúkastífluna þangað til þeir komast í gegn. Málið er einfaldlega að íhaldsstefnan hefur sigrað, allavega efnahagslega, ef ekki siðferðilega. En íhaldsstefnan hefur einfaldlega ekki áhuga á siðferðismálum. Í stjórnarandstöðunni raða sér upp sjálfskipaðar siðferðisuglur á alla bita og segja wúhú. Þannig að svarið við hægrimennsku sjálfstæðismanna er að skreyta sig með aðeins meiri fasisma til hægri. Og þá er mér sama um hvort þeir kalla sig vinstri græna, hægri fjólubláa, miðjublómarauðvínsklúbbinn (flest allir gamlir "vinstri" menn) eða eitthvað annað. Í þessari furðulegu flóru eru aldraðir og öryrkjar eina fólkið sem stendur með einhverjar lappir i pólitískum veruleika. Sem þýðir að þeir eru líklegastir til að vera hækja Sjálfstæðisflokksins eftir næstu kosningar. Ekki einu sinni Sjálfstæðismenn eru búnir að fatta djókinn í þessu öllu saman, horfa eins og gengnir út úr hömrum yfir hroðinn val og botna ekki neitt í neinu. Ég hef yfirgefið alla flokka og mér er sama þó það komi ekki í blöðunum. Ég á ekki nema einn kost. Að fara í sérframboð. Lúserar, tækifærissinnar og einkaframapotarar gefi sig fram og hoppi á vagninn. Ég tek það fram að ég er ekki að hugsa um þetta til að koma fram einhverjum málefnum: Þetta er bara svo að ég hafi einhvern til að kjósa.

Góð tíðindi

"Vísindamenn hafa til þessa getað greint ákvarðanir manna um að hreyfa sig með tilteknum hætti áður en þeir gera það. " Sko, þarna er komin frétt sem skiptir verulegu máli. Að ég ekki tali um alla þá heilastarfsemi og heimavinnu sem hefur þurft að leggja í að komast að þessu. "Og nú veltum við okkur allir á magann, strákar....."

mánudagur, mars 05, 2007

Auðveldur

mánudagur. Andri er farinn í bæinn og ég og kötturinn tölum nú saman á hennar tungumáli. Sem ég viðurkenni að er meira talað en mitt móðurmál þegar við erum tvö ein. Matarafgangar frá helginni spara mér vinnu og ég les Steinólf í Fagradal þegar ég kem heim úr vinnunni. Skemmtileg sveit, Skarðsströndin, að ég best fæ séð. Keypti mér kókómjólk frá Búðardal til að hafa með Steinólfi. Karlinn er góður, kókómjólkin aftur á móti ekki. Full af óhollustu og svo er þetta ekki í endurvinnanlegri flösku. Þetta sull er eins og eitthvað út úr kú með súkkulaði útí. Fö. Eftir morgundaginn byrjar vinnulota þar sem ég þarf að hlusta á slatta af verkefnum og gefa fyrir. Ef einhvern vantar letidýr til að hafa í stofunni gæti ég annast útvegun á þeim.

sunnudagur, mars 04, 2007

Og enn í dag

hef ég verið bæði latur og duglegur. Ég hef tekið upp upplýsingar úr fimm bókum: Staflinn á stofuborðinu hefur lækkað sem því nemur en það þýðir bara að ég fer í aðra ferð á bókasöfnin til að tína upp nýjar strax á mánudag. Ég hef þvegið þvottinn minn. Burstað köttinn. (Og sængina mína.) Og ég á nýjar buxur. Ekki svo afleitur dagur eftir allt...

Í dag


hefur gömul minning leitað á mig. Kannski var mig að dreyma eitthvað: Allt of margir draumar mínir snúast um fólk og atburði úr fortíð minni. Allt í einu átta ég mig á að ég á enga drauma um framtíð: Ég þarf að bæta úr því. Ég lifi í einhverju endalausu núi þar sem ég er að vinna úr einhverju gömlu þái og það er ekkert alltaf gaman að hitta þann einstakling sem maður var einhverntíma fyrrum. Ég er orðinn dauðleiður á þeim gaur og mig er farið að langa til að hitta fyrir einhvern nýjan Erling. En í dag er ég fjögurra ára, í eldhúsinu hjá ömmu í Hellir. Ég er að skoða Fálkann: Myndasögu um Rasmus Klump. Pabbi las stundum Klump fyrir mig. Jói frændi min kemur inn og ég bendi honum á mynd af Pela pelíkan, með öll verkfærin í goggnum. "Jói, þig vantar svona fugl" segi ég við hann. Og ég er enn á því að Jóa hefði vantað svona fugl. Ég sé þá í anda labba saman út í bragga, Jóa og fuglinn hans. Svolítil rannsókn leiðir í ljós að mamma hans Rasmusar sá aðallega um að eiga nóg af pönnukökum og þurrum buxum handa honum. Svona svolítið eins og amma. Hvort tveggja var mikilvægt fyrir strák austur í Flóa fyrir hálfir öld. þar sem pollarnir voru bara aðeins dýpri en vatnið í kringum þá og útgerð af ýmsu tagi töluverð. Og svo komst ég að því að Rasmus Klumpur og Brynjólfur eldri sonur minn eiga sama afmælisdag.

laugardagur, mars 03, 2007

Leti, leti.

Ég er latur í dag. Vakna, fer á fætur, sofna aftur. Vakna, vaki stund og sofna aftur. Laga til slóðirnar á blogginu mínu, bæti við nýjum og tek gamlar út. Ég tengi meira að segja á Moggabloggara. Mér finnst svo gaman að þeim. Þetta eru svo virðulegir menn sem áreiðanlega byrja á að raka sig, fara í sturtu og setja á sig hálsbindi áður en þeir taka saman hátíðlegan pistil um málefni dagsins og trúa því virkilega að þeir hafi eitthvað að segja. Þeir eru eins og prestar á páskunum, þessar elskur. Tóta pönk tekur þetta vandlega saman í pistli um veröld bloggarans. Pólitíkin fyrir mér? Hún er að verða eins og myndasaga eftir Hugleik Dagsson. Kjósið okkur. Og álíka óhugguleg. Framsókn baslar eins og vanalega við að finna á sér vinstri löppina, en hún týndist fyrir hálfum öðrum áratug og þeir hafa notað Sjálfstæðisflokkinn fyrir hækju síðan. Og enn á að leika sama leikinn, kaupa kjósandann með gylliboðum og hóta stjórnarslitum á síðustu vikum fyrir kosningar. Hvaða fólk halda þeir að hoppi á þetta lengur? Þetta var gert síðast, Siv, og meðan ég man, mér finnst ekkert varið í lappirnar á Siv. Hvorki þá hægri né vinstri. Samfylkingin? Ungir framagosar með eintómar hægri lappir sem vilja losna við forystuna svo þeir geti stillt sér upp í biðröðina eftir pólitísku sjálfsmorði: Stjórnarsamastarfi við Sjálfstæðismenn. Vinstri grænir? Sorrý, mér finnst kynjakvóti barnalegur og niðurlægjandi fyrir konur. Steingrímur eins og barnakennari sem segir "strákar, leyfið stelpunum að vera með líka..." takk. Frjálslyndir? Empy recycle bin. Og það sem koma skal? Ómar Ragnarsson með frambjóðendur sem er margbúið að hafna annarst staðar í eftirdragi? Aumingja karlinn. Hugleikur hefur eiginlega engu við þennan handapatshorror að bæta.

föstudagur, mars 02, 2007

Eitt

langar mig að vita: Hvar í ósköpunum fann Landsvirkjun þessa Neðri-Þjórsá sem allt í einu þarf að virkja í djöfulmóð?

Tiltektar- og letidagur.

Venjulegur föstudagur. Tekið til, farið í klippingu. Snatt. Kaupi lambahrygg í helgarmat: Andri kemur austur jafn rófulaus og fyrr en kötturinn hans hefur nóga rófu fyrir þau bæði. Hún lætur alltaf eins og hún hafi sinn raunverulega húsbónda heimtan úr helju. Ekki að ég sé afbrýðisamur, þvert á móti. Lafði Grátrýna lætur sig hvort eð er aldrei vanta ofan á sængina þegar ég fer að hátta. Hún hefur ekki misst úr dag síðan hún kom á heimilið að mæta upp í rúm á háttatíma. Að því leyti er hún staðfastari en eiginkona: Verst að hún fer aðeins meira úr hárum en eiginkonur gera, og hef ég þó séð sitt af hverju um mína daga af hárafari hjásvæfna. Meira en nóg, og sá hefur nóg sér nægja lætur. Stundum lætur hún mig líka vita ákveðið að komin séu háttumál á heimilinu. Hún heldur líka heimilinu betur músalausu en nokkur kona gæti, og þessa dagana er hún handviss um að fataskápurinn minn sé fullur af óboðnum gestum. Sem er rangt. Og þessi elska segir aldrei, aldrei "Er útihurðin lokuð" og "Mundirðu eftir að læsa bílnum" nákvæmlega þegar maður er lagstur á koddann og ætlar að slaka á. Ekki að það hafi virkað, hér áður fyrr - Ég sagði bara "Farðu og gáðu."

fimmtudagur, mars 01, 2007

Danskir dagar

í Hagkaupum og eldar loga í Höfn. Vonandi blossa óeirðirnar ekki upp í Hagkaupum. Í dag var sólskin og svalur vindur: Undir kvöld er komin snjókoma. En sennilega breytist hún fljótlega í rok og rigningu, að vanda. Flutti í morgun fyrsta fyrirlestur um kvenfólk og brennivín í sögulegu ljósi. Var gerður góður rómur að og aðsókn með fádæmum. Stelpurnar gerðu líka góðan róm að..þó ekki kæmi fram fyrr en í lokin hvað ég var að fara og einhverjar hefðu látið sig hverfa. Þarf að pússa einhverjar misfellur og laga til fyrir öðruvísi áheyrendur, og það er ég góður með annan í lok mánaðar.

Þar loksins

fór að heyrast í rétt kjörnum bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna í Árborg og að hann tæki til máls um bæjarmálin. Kannski er hann að boða innkomu sína í þau með þessu og við förum að heyra meira frá honum.