Veröld kyrr
í Feðgabyggð. Andri fer í skólann og ég líka, klukkutímanum síðar. Heimsóknakötturinn Gestur kíkir inn. Loppa reynir að vera góð við hann og vill gjarna leika sér við hann, biður um mat handa honum og er í alla staði hin altilegasta við hann en hann er dálítið styggur, hefur greinilega verið hrekktur og er frekar hræddur. Kemur samt öðru hvoru og vill vel. Ég hef verið að lesa um ölgerð í Noregi og fann þar dálítið athyglisvert sem gæti varpað ljósi á sjálfa Njálu. Norðmenn eiga nefnilega til þá þjóðtrú að í brugghúsum sitji kerling í horninu - í sumum allt að ein í hverju horni - og þegar þeir brugguðu höfðu sumir þá hjátrú að skvetta svolitlu öli í hornkerlinguna, til að hafa hana góða. Og við vitum hver mælti svo: "Engi er ég hornkerling.." Hallgerður hefur greinilega ekki ætlað að láta skvetta í sig ölinu í veislunni forðum, hefur trúlega hugdað sér að gera það sjálf..það er ekki á hverjum degi núorðið að menn uppgötvi nýja fótnótu við Njálu!


Links to this post:
Create a Link
<< Home