miðvikudagur, september 17, 2008

Slagveður

og vatnsveður. Jámm, veðurblogg. Ég hef verið að fylgjast með þakinu á húsinu mínu til að gá að leka, en þakið virðist halda vatni eftir jarðskjálftana í vor og ekkert til að hafa áhygjur af. Fyrst það þoldi þetta vatnsveður er sennilega allt í lagi. Og Andri þurfti ekki að fara í bæinn í dag þannig að hann er þurr og frekar hress. En teppið, kötturinn og bók að lesa blífur alltaf í svona veðri og regnhljóð á þaki er bara gott gegnum svefninn. Enda svaf karlinn vel í fellibylnum. Og húsið stendur hátt svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af niðurföllum og flóðum. Vatnshalli frá húsinu í allar áttir.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home