sunnudagur, september 14, 2008

Löt helgi

og ég hef aðallega sofið. Ég var sem sé að uppgötva hina ágætu kosti vatteraðra rúmteppa frá IKEA- þau geta á góðri nóttu alveg komið í staðinn fyrir sæng. Í gær var hins vegar skemmtileg uppákoma þar sem nokkrir hressir gamlir nemendur úr Þorlákshöfn bönkuðu upp á til að taka þátt í steggjapartíi eins þeirra, hans Olavs Veigar. Ég fór með þeim í rútu niður í Flóa, sagði sögur og talaði um kvenfólk og brennivín, og eftir stutta helgiathöfn fórum við aftur upp á Selfoss. Þeir enduðu ferðina með því að syngja þjóðsönginn fyrir mig. Leystu mig út með kippu af Kalda og einni flösku af Leffe sem ég fann í vestisvasanum þegar heim kom. Gaman að því. Nú get ég bætt enn einu á ferilinn sem sagnfræðingar geta tekið sér fyrir hendur: Troða upp í steggjapartýum. Annars hef ég aðallega sofið, við feðgar fórum út að borða því ég nennti ekki að elda og helgin var pollslök í alla staði. Loppa var líka afar iðin við að slappa af með mér. Svaf um leið og ég og fór niður í eldhús um leið og ég eftir hressingu, en svo möluðum við á eftir og þvoðum okkur um lappirnar.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home