mánudagur, september 29, 2008

Getur einhver

sagt mér hvað er í raun og veru í gangi í bænum? Og getur einhver bent mér á ábyrgan stjórnmálamann sem er er marktækur þessa dagana og gerir eitthvað annað en að kinka kolli alvarlegur og segja "allt í lagi, allt í lagi, ekki vera hrædd krakkar mínir, ég veit þetta allt saman"? Þetta minnir mann á hundna sem allir voru einu sinni með í afturglugganum á bílnum sínum og nikuðu í sí fellu við hverja hreyfingu bílsins en það var af og rá að þeir gætu gelt. Eða er ég sá eini sem er farinn að sjá í gegnum þetta? Í hvert skipti sem einhver segir "Krónan er sterk" fellur hún um nokkur prósent í viðbót. Er ekki staðan sú að lukkuriddarar hafa þeyst yfir landið og skilið eftir sviðna jörð? Mér finnst allavega vera brunalykt af þessu öllu saman, og er það þó kurteislega orðað. Á laugardaginn sá ég merkilegt tæki austur á Hellu: Það var svona um það bil meterslöng tunna með dælu aftan á sem hét "Mini-muck" og var svona dótaskítadreifari sem varla hefði dugað nema í eina ferð til að bera á grasflötina mína. Ég velti fyrir mér hvernig "Maxi-muck" liti út en ég þarf ekki að velta því fyrir mér lengur, bara kveikja á sjónvarpsfréttum. Eða opna blað. Því það segja sko allir að allt sé í lagi og daginn eftir fer stóri dreifarinn í gang og lífræni úrgangurinn fer í loftræstikerfið. Eða skíturinn í viftuna. Og ekki segja mér að allt sé búið. Ég átti engin hlutabréf í Glitni: Mér hefði ekki dottið í hug að kaupa í nokkru þar sem Hannes "High flyer" Smárason var að ríða húsum. Eða Jón Ásgeir. Svo mikla trú hafði ég ekki á þessum andans ofurmennum, sem þeir virtust vera þegar best gekk. Það geta einfaldlega allir verið skipstjórar í góða veðrinu. En svona í heildina séð þá virðist yfirtakan á Glitni vera þannig að einhver hafi rétt fram litla fingur og öll hendin verið hrifsuð - svona eins og þegar menn fara í greiðsluþjónustuna hjá Kaupþingi.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home