fimmtudagur, september 11, 2008

Feðgabyggð

er í ró og næði að vera til. Andri vekur sjálfan sig samviskusamlega eldsnemma á morgnana og fer í skólann. Ég vek sjálfan mig líka og geri það sama. Loppa, skömmin svarna, vekur sjálfa sig þegar henni sýnist og gerir það sem henni dettur í hug. Skólinn er kominn í gang og vinnan á keyrslu svo ég get farið að snúa mér að vatnsfallaverkefninu aftur. Eitthvað hefur svosem verið að gerast en varla að taki því að setja það á netið: Ég varð að skipta um uppþvottavél, en það var minniháttar bömmer, því greyið gamla hafði orðið fyrir heilabilun í jarðskjálftunum og hún kom ekki fram fyrr en ábyrgðin rann út og lítið að sækja í tryggingarnar. Svo ég ákvað að láta hana darka þar til hún bilaði alveg. Ekkert í gangi nema þessi friðsæld sem er okkur feðgum báðum svo mikilvæg. Ég er kominn á kaf í allskonar stúss sem ekki er vert að ræða hér enn en kemur í ljós.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home