sunnudagur, september 28, 2008

Eins og vant er

og vænta mátti hefur helgin verið okkur feðgunum hreint ágæt. Í gær fórum við í rannsóknarleiðangur. Skrýtið með þessa rannsóknarleiðangra Sagnfræðinga - þeir liggja til staða þar sem enginn gengur lengur um og einhvers staðar er hálfhrunið hús - það vantar bara tónlist eftir Ennio Morricone til að spila undir og þá er leiðangurinn fullkomnaður. Við fundum ekki það sem verið var að leita að - ekki enn - en það gæti samt vel verið þarna. Leiðangrinum lauk á Hvolsvelli þar sem fjöldi manna kom saman við Sögusetrið og var að leika sér. Þarna var hreystikeppni hreppa í Rangárþingi austanverðu þar sem menn veltu heyrúllum og hlupu á stultum. (Eða ekki.) svo voru þarna nokkrar kindur í búri, frekar vinalegur tuddi í öðru og ein bröndótt kú sér í búri sem leiddist ferlega. Við fengum kjötsúpu í íláti sem var eins og lítill blómapottur. Allt frítt inn og gefins. Það sem mér fannst best við hátíðina var að það var enginn þarna með kántrýstæla, eins og klipptur út úr amerískri bíómynd veifandi bjór. Reyndar var enginn veifandi bjór um miðjan daginn þarna. Allt frekar venjulegt en öllum fannst bara gaman.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home