Næði
er yfirskrift þessara daga það sem af er. Við höfum slakað á, hafð það ekki gerst áður á þessum bæ, grillað úti - kebab úr kótelettum með rauðlauk, papriku og tómötum á spjóti - lesið, fórum í dag á Fjöruborðið og fengum okkur humar. Sáum Álfa- trölla og norðurljósasýninguna. Gaman að henni. Við Loppa höfum legið í letinni eins og við erum löng til, teygt úr okkur, sleikt á okkur lappirnar og lesið einhverja þá hraksmánarlegustu þýðingu á nokkurri bók sem ég hef opnað til margra ára. Tré Janissaranna, heitir hún, og einhver gæti til dæmis sagt þýðandanum að það er til eitthvað sem heitir orðabók. Svo væri líka alveg í lagi að læra bæði tungumálin, það sem þýtt er úr og á, auk þess sem illa lesin próförk bætti ekki úr skák. Bókin er góð en ég þurfti stundum að bíta á jaxlinn við lesturinn að henda henni ekki frá mér. Nýasti munaður heimilisins er að kreista sítrónu, setja í glas og fylla með vatni og klaka til að drekka úti í garði. Heilsusamlegt, frískandi, einfalt og ódýrt svo sem vera ber. Við Andri höfum verið að ræða áhættuhópa: Samkvæmt statistík er hann í áhættuhópi að verða fjöldamorðingi. Samkvæmt lífsreynslu er ég í áhættuhópi að rekast á einhleypar konur sem vilja eignast hús á Spáni. Það eru nokkrar á sveimi hér og þar um vefinn og víðar að leita. Ég sá einhverntíma vefsíðu af svona pari sem hafði tekið saman og flutt til Spánar. Hún í óða önn að rækta blóm, hann sat í blómahafinu, gugginn með útstæð eyru og var vansæll í framan. Ég er enn ekki nógu aldraður og einmana til að enda sem garðálfur hjá einhverri blómakerlingu í öðru landi. Auk þess sem ég hef asnast til að læra ekki golf. Ég er alltof einþykkur sérvitringur til að láta teyma mig um á eyrunum.


Links to this post:
Create a Link
<< Home