fimmtudagur, ágúst 14, 2008

Þetta er bara sagnfræði, sko.

Gaman að lesa Moggann. í dag. Geir Haarde að tjá sig um grein Vals Ingimundarsonar. Ég er svo sem ekki undrandi þar sem ég hef orðið áratuga reynslu í því að vera að útskýra fyrir fólki hvað sagnfræði sé og hvað sagnfræðingur gerir. En hjá Geir Haarde liggur í orðunum að fyrst þetta sé sagnfræði sé eiginlega ósköp lítið að marka þetta. En það er auðvitað ályktun sem sagnfræðingurin ég er að draga. Hins vegar verð ég að tjá mig um vandræði mín við að gera sagnfræði að lögmætri atvinnu. Vegna verkefna sem komu inn á mitt borð komst ég að þeirri niðurstöðu að mun hagstæðara væri fyrir mig að stofna einkahlutafélag utan um verkið - þá gat ég allavega fært kostnað til frádráttar í staðinn fyrir að borga skatt eins og einstaklingur af verkum mínum. Þetta hefur reyndar verið hægt lengi með því að menn skrá sig á launagreiðendaskrá sem verktakar. Svo ég fór að reyna að koma Söguverkstæðinu ehf. á koppinn. Það kostaði mig tvær ferðir til Reykjavíkur og eina austur á Hellu (ég bý á Selfossi) að koma því inn í höfuðið á mönnum hvað sagnfræðirannsóknir, útgáfustarfsemi og skyld störf væri eiginlega. Eina bótin að ég gat fært kostnaðinn við það sem akstur. Vandinn var sem sé sá að samkvæmt ÍSAT - íslenskri atvinnugreinaflokkun - er sagnfræði ekki á blaði en þó vita menn af einhverju sem heitir starfsemi sögufélaga. Þess vegna er sagnfæði og sagnfræðirannsóknir ekki vinna. Og sá sem ætlar að stofna félag utan um þá atvinnu þess vegna sennilega annaðhvort að gera grín að kerfinu eða hefur fundið einhverja mjög dularfulla leið til að fara í kringum það. Niðurstaðan varð að sagnfræðin féll undir ÍSAT 70.22.0 -Viðskiptaráðgjöf og önnur rekstrarráðgjöf hjá Ríkisskattstjóra, sem hins vegar vakti nokkra kátínu hjá skattstjóraembættinu á Hellu. Er ekki kominn tími til að sagnfræðingar hefji baráttu fyrir því að atvinna þeirra teljist lögmæt? Þegar upp er staðið hef ég komist að því að í því umhverfi iðnaðarmanna sem ég bý í verður allt auðveldara ef ég er verkstæði - hér skilja menn strax hvað er gert á verkstæðum. (Nýsmíði, viðgerðir og þess háttar, já.) Ég er ekki einn í syndinni, því Sögusmiðjan ehf. er líka til en skilgreind allt öðruvísi samkvæmt ÍSAT og ef til vill hafa fleiri valið þennan kost. En það er kominn tími til að sagnfræði verði skilgreind sem vinna.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home