mánudagur, júní 16, 2008

Doktor Skjaðak

er það sem ég heiti í dag. Ég fann loksins algerlega sennilega skýringu á því hvað skjaðak er. Sem hefur þann kost að vera bæði einföld og sennileg. Það er semsé ekki marktækt að vera að velta fyrir sér sögu öls á Íslandi og sleppa skjaðakinu eða eiga ekki skýringu á því. Það var nefnilega sagt um heilagan Þorlák biskup að hann var svo ölsæll að hann tók skjaðak úr öli. Og varð það þá drykkjarhæft, tekið skal fram. En ég læt það ekki uppi núna hvað það merkir - það býður betri tíma. Annað er nú ekki merkilegt í fréttum héðan, eiginlega.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home