laugardagur, júní 07, 2008

Dagurinn

færði mér breytingar á áætlunum og við feðgarnir skruppum á fræðaráðstefnu á Leirubakka. Hlustuðum á fyrirlestra um fornleifar í Rangárþingi, manngerða hella og fleira. Höfðum gaman af og renndum heim aftur. Það var gott að keyra inn í rigninguna um neðanvert Suðurland í dag, koma heim og baka belgískar vöfflur. Nágranni bankaði upp á og færði mér smakk af þessu - sem ekki sverti tilveruna á nokkurn hátt. Í heildina góður dagur, bara.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home