Of eitthvað
Í kvöld er allt einhvern veginn of eitthvað. Annaðhvort það eða ekki nóg eitthvað. Of kalt til að fara út í garð að laga til eða þá ekki nógu hlýtt. Of mikil mugga til að fara í bíltúr. Of kalt til að fá sér ís. Ekki nógu bjart til að taka myndir. Og ég er of þungur. Eða ekki nógu léttur. Nenni engu sem er allt í lagi þannig séð. Það er nú föstudagskvöld. Frelsisher Flóa og Skeiða farinn eitthvað. Kettirnir nenna ekki heldur út en ég á hálflesinn reyfara. Og tvo hálfsofandi ketti. Ég nenni ekki að vera neikvæður út í Eurovision því nú er þjóðin upp með sér eins og þegar handboltalandsliðið kemst upp í milliriðla. "Við" erum mjög góð í dag. Og verðum það þangað til um kl. tíu annað kvöld. Er á meðan er og "við" erum menn með mönnum. Líklega best að horfa á þetta með skárri auganu. Kannski grilla ef veðrið verður ekki of eitthvað.


Links to this post:
Create a Link
<< Home