föstudagur, desember 07, 2007

Smám saman

kemst lag á tilveruna. Sumir hlutir eru fljótir að finna sér stað í nýju umhverfi, aðrir taka lengri tíma. En við hvern hlut sem finnur sér samastað og hvern kassa sem tæmist skapast rými og þá gengur betur að ná saman tilverunni aftur. Ég er feginn að vera kominn út úr Sænska húsinu: Þó ekki hafi farið illa um mig þar minnist ég eftirá stöðugrar baráttu við skít og óhreinindi sem aldrei ætluðu að fara og komu strax aftur. En öllum mikilvægu lífsspursmálunum sem voru á borðinu þegar ég flutti þangað hefur verið svarað og fá sem blasa við. Það er að koma helgi og þá finnum við feðgarnir út úr hlutunum og komum þeim fyrir, núna þegar allt draslið er komið upp eftir. Það er bara búið að taka viku.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home