Allt
sem til stóð um helgina náði fram að ganga. Orgían mín vel skipulagða fyrir einn mann heppnaðist með ágætum: Það gekk einfaldlega út á að taka sér frí frá amstrinu, sleppa því að pakka niður, engir fyrirlestrar að undirbúa heldur bara að lesa, sofa og éta. Og leika sér svolítið. Ég náði tökum á því að nota ipod - sem reyndar er ekki erfitt, bjó til hljóðglæru í Power-point og yfirfærði hana á ipoddinn - það tókst sæmilega og þetta var bara fyrsta tilraun, ég á eftir að koma auga á fleiri möguleika í þessu. Einn bjór undir svefninn skaðaði ekkert: Nú má brugga úr öðru en byggi, vatni og geri í Evrópusambandinu og ég hef uppgötvað ágætan hveitibjór sem heitir Erdinger og er sælgæti. Svo tók ég niður ónýta ljósakrónu úr Andra herbergi og hann fékk eina sovéska í staðinn sem hann er hæstánægður með: Jöfn dreifing birtunnar og svona. Enda ekki nema nokkrir dagar sem hann þarf að nota þessa lýsingu sem svo verður skilin eftir lögum samkvæmt þegar við förum héðan úr húsinu. Sem sagt góð hvíldarhelgi eins og ég var löngu búinn að lofa sjálfum mér.


Links to this post:
Create a Link
<< Home