Verkefnin
þrýtur ekki í Feðgabyggð. Ég er að vísu ekki að garfa neitt mikilvægt í þessu slagviðri: Bara njóta þess að það rignir. Mennirnir sem vinna úti í grunni eru kannski ekki sammála mér að vera að smíða í þessu regngallaveðri og þeir eiga samúð mína, en samt hafa þeir það gott: Þetta er bara Austurvegurinn á Selfossi, ekki Austur-Grænland, gólfið undir þeim stendur kjurt, rigningin er hlý og það er ekki ágjöf. Bara vatnspollur á gólfinu hjá þeim. Ég keypti mér hægindastól með skemli í dag: Stóðst ekki freistinguna varðandi tilboð frá Europris. Hann er með leðri, eða eins og segir á miðanum sem fylgdi með: 100% ku. Sem sagt ekki nautshúð, heldur beljuleður. Ég hef að vísu áhyggjur af að á heimilinu eru tvö stykki af 100% katt, og þau dýr geta leikið húsgögn grátt. En það koma tímar og koma ráð. Ég þurfti að vísu að setja gripinn saman, en það tókst að lokum. Ég er góður í samsetningum þó ég sé ekki einn af þessum IKEA -skilyrtu eiginmönnum sem að lokum verða jarðsettir með séxkant í hendinni. Þessa dagana hverfist vikan mín um miðvikudaga: Þá er vinnan meira en hálfnuð. Ég þarf virkilega að venja mig á að vera búinn með húsverkin á fimmtudögum, svo ég geti skellt mér beint í að njóta helgarinnar þegar ég kem heim á föstudögum. Kannski þegar ég er fluttur - hver veit. Ég er samt ekki farinn að telja dagana enn.


Links to this post:
Create a Link
<< Home