mánudagur, ágúst 20, 2007

Þar kom að því

Skólinn byrjaður og það merkir að í búðirnar koma skólabækur og töskur og stærðarinnar blokkir af osti. Ekki veit ég af hverju skólaundirbúningur tengist stórum oststykkjum eða hvort það er eitthvað sérstaklega gáfulegt við þau, en svona er það. Fundur í morgun í vinnunni og seinnipartinn skruppu feðgarnir í IKEA að skoða. Ég fékk þar svör við öllum mínum spurningum, einn túr í IKEA leysir flest þau vandamál sem ég kem auga á við flutninga. Og ég villtist ekki. En Andri er ómissandi leiðsögumaður og förunautur um þetta sveitarfélag: Eftir skiltum að dæma eru núna sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður og IKEAhreppur þarna. Það væri gaman að skreppa til hreppstjórans í IKEA með minkaskott. Góði hirðirinn átti ekki það sem ég var að leita að í dag en það gerir ekki til, ég á fleiri ferðir eftir þangað. Og nú er komið síðsumar, dimmt á kvöldin, það rignir á gluggann minn og járnamennirnir úti í kjallaranum við húsið mitt eiga samúð mína alla. Þeir hljóta að vera að binda blindandi.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home