mánudagur, júlí 23, 2007

Steypa!


Maðurinn sem fann upp steypuna er afar vanmetinn maður í mannkynssögunni. Einhver Rómverji liggur undir grun en hefur aldrei verið látinn njóta sannmælis fyrir hverju hann kom af stað. Það er gaman að steypa því það þýðir að áfanga í einhverju verki er lokið. Eitthvað sem hefur verið undirbúið dögum og vikum saman er búið og nú er bara eftir - að steypa. Þegar á að steypa koma allir karlar að og strákar sem annars eru látnir vera í eintómu fokki alla daga fá bara að standa og horfa á. Og áður en nokkur veit er kominn veggur - eða gólfplata - og innan veggjanna og á plötunni fullnægir maðurinn frumþörfum sínum um mat, svefn og húsaskjól. Og í dag var verið að steypa fyrir utan gluggann hjá mér. Svo nú er komin plata. Og það er engin furða þó ég sé dálítið stressaður þegar steypan nær alveg heim að stofuveggnum hjá mér og skín í beran húsgrunninn. Og fylgist vel með fasteignamarkaðinum því mér líður eins og ég gæti þurft að hlaupa í snatri áður en annaðhvort gerist að húsið mitt hrynur eða skurðgrafa kemur gegnum vegginn. Maðurinn á hæðinni fyrir ofan segir að það verði enginn vandi að flytja: Gera bara gat á vegginn og leggja planka milli húsanna..En ég hugga mig við að ég á part af þessari plötu sem nemur einu stæði fyrir bíl.

|

Links to this post:

Create a Link

<< Home