Rigning
í morgun en það þornaði fljótt. Þurr jarðvegurinn og jurtirnar drukku þetta í sig á augabragði. En samt...aðeins breyting. Hef lagt vinnu í að stúdera fasteignir, verðlag í byggingavöruverslunum - smá túr í bæinn leiddi mig í allan sannleika um byggingavöruverslanir á Selfossi. Það er efst í mér núna að kaupa í Hveragerði. Já, ég veit að ég þarf að selja fyrst, en það skaðar ekki að vera búinn með heimavinnuna. Kettlingurinn er enn inni í skápnum: Hann skríður fram að dyrum og horfir út á heiminn, en sofnar svo. Það er dæmigert kattarviðhorf: "Þarna er eitt stykki alheimur framundan. Ég held að ég fái mér lúr." Eftir nokkrar vikur mun ég gefa fólki kost á gæðaketti: Móðir rangæskur fjósköttur, faðir einhver endemis selfosshnakki. Blá læða með hvíta fætur og bringu. Hef enn ekki fundið orku til að skrifa, en það mjakast líklega líka áfram bráðum, ég kvíði því ekki. Undanfarið hef ég orðið var við fyrirbæri sem ég kalla Erlingseftirlitið: Það er lið sem liggur á blogginu mínu (og víðar) til að fylgjast með ferðum mínum og gerðum í von um að finna eitthvað sem það fólk gæti notað gegn mér. Þetta er fólk sem á í einhverju einkastríði við mig og ég hef frekar gaman af þessu fólki. Hef stundum leikið mér að því og látið það hlaupa um með eitthvert rugl. Það er gaman að fólki sem á í strðiði við mann, sérstaklega þegar maður berst ekki á móti og lætur fólk þreyta sig á látunum í sjálfu sér. Þá er mér skemmt....hehe. Skrapp í BYKO eftir hádegið fyrir forvitni sakir: Þar var verið að kynna nýja ryksugu sem rambar sjálf fram og aftur um gólfið og hreinsar það. Bakkar frá þegar það rekur sig á eitthvað. Davíð Kristjáns sagði líka við mig þar: "Þarna sérðu, Erlingur, hvað konur eru orðnar óþarfar." Ég svaraði því til að ég þekkti konur sem bökkuðu ekki frá þegar þær rækju sig á vegginn heldur lemdu hausnum í hann aftur. Og aftur. Svona svolítið eins og Stokkseyringar í gamla daga, sem æfðu sig fyrir böllin með því að lemja hausnum utan í frystihúsið í miðri viku. Hehe...


Links to this post:
Create a Link
<< Home