Núna
er búið að jafna vandlega úr mölinni í grunninum og slétta hana svo hún er eins og dansgólf. Það fer að styttast í að platan verði steypt og eftir það liggur leiðin bara upp á við. Ég legg gögnin varðandi fasteignaviðskiptin til hliðar og set allt í möppu. Það hlýtur að vera toppurinn á staðlaðri tilveru að hafa möppu fyrir dagdraumana. En ef allt veltist eins og ég vil þá er einmitt núna verið að jafna út í grunninn á húsinu sem mig langar mest í þessa dagana. Eða jafnvel flesta daga. En það er aldrei að vita enn, ekkert hefur verið neglt niður og ef ég finn ekki hús getur alveg eins verið að eitthvert hús finni mig. Kaupin gerast þannig á eyrinni. Í morgun hringdi kona frá kvikmyndafyrirtækinu sem við Andri ætlum að leika fyrir í næstu viku til að segja okur hvenær við eigum að mæta. Upptakan verður á "Skóum" (Það stóð í bréfinu) og það er eins gott að við erum hundkunnugir á Suðurlandi, annars gætum við villst heim að Sandölum. Eftir að ég hef lagt á hringir hún aftur með það sama og spyr hvort það vilji nokkuð svo til að ég eigi íslenskan hund. Nei, en ég á íslenskan kött. "Geturðu komið með hann?" spyr konan strax en ég segi að kötturinn sé læða og sé í augnablikinu í fæðingarorlofi. Aumingja Kampagrána verður líklega að ýta vonum um starfsframa til hliðar í bili vegna barneignanna. Svona verður það alltaf.


Links to this post:
Create a Link
<< Home