Mikið að gera
hjá öllum nema mér í dag. Andri fór í sína vinnu og í holunni bak við húsið voru menn að hamast í járnabindingum. Það á líklega að fara að steypa plötuna -- og þá liggur leiðin bara upp hjá þeim, körlunum bak við hús. Svo fór ég og sótti Andra og við kíktum á fasteignir í bakaleiðinni - þetta væri nú ansi gott, bara. Þarna væri bæði hægt að hafa kött og rækta graslauk í pottum á sólpallinum - og jafnvel hafa heitan pott. Ganga í sólpallamafíu Selfossbæjar. Parhús með palli. Eignst pickup og svarta Labrador- tík til að falla alveg inn í móralinn.


Links to this post:
Create a Link
<< Home