Ölvar mig, því ölvi...
Og nú á að fara að brugga lúxusbjór í Ölvisholti. Það verður að segjast að bæjarnafnið hæfir framleiðslunni, en ekki veit ég hvað honum Runólfi heitnum fyrrum bónda þar á bæ hefði fundist um það. Ekki veit ég hvað framleiðslan á að heita enn sem komið er, kannski Brúni, því Brúnastaðir eru eiginlega næsti bær. En eldri flóamenn eins og ég kannast bara við Rúnka í Ölvisholti. Svo nú aukast möguleikarnir á að hægt sé að fara inn á staði eins og Goldfinger í Kópavoginum og biðja um einn kaldan Rúnka. Og þjónninn mun svara..stóran eða lítinn?


Links to this post:
Create a Link
<< Home