laugardagur, júlí 28, 2007

Góður laugardagur

með sólbirtu og sunnanþey. Ég er samt frekar latur. Ég er eitthvað að myndast við að taka til, en fer mér hægt við það. Góðir hlutir gerast hægt, og það er svo skrýtið að tiltektir sem eru gerðar hægt endast einhvern veginn betur, því þá gefur maður sér tíma til að hugsa verkið og finna lausnir sem endast þegar þarf að losna við drasl. Ég læt uppþvottavélina þvo þau eldunaráhöld og ílát sem helst þurfa hreinsunar við, meðan ég tek til í eldhússkápum, raða í hillur og rútta drasli frá í staðinn fyrir að færa það á nýja staði. Andri dvelur einhvers staðar bak við fjöllin við skrýmsladráp og kettlingurinn hoppar um á gólfinu og stríðir mömmu sinni. Hún hefur fengið nafn, við köllum hana Loppu, sem þýðir að hún heitir fullu nafni Loppfríður Araminta de la Grange. Mamman heitir sem sé Hermína Elmindreda de la Grange fullu nafni, en Mína í daglegu tali. Kettlingurinn tekur þessu skynsamlega, einfaldlega með því að ansa þessum nafngiftum ekki. Ekki enn sem komið er.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home