sunnudagur, júlí 01, 2007

Fórum

í dag í menningarferð út í Hveragerði. Byrjuðum á Listasafni Árnesinga þar sem Þorvaldur Þorsteinsson talaði um landslagsmyndir. Gaman að því, og eftir það fórum við í Eden til að fá kontrastinn milli íslenskrar há- og lágmenningar. Eftir það á minjasafnið hans Kristjáns Runólfssonar og síðan á annað minjasafn sem er kallað Álnavörubúðin. Í heildina frekar interessant útkoma. Kettlingurinn í skápnum er farinn að fara á stjá og leggja af stað út í heiminn. Hann hefur þegar séð alheiminn: Hann er amerískt rúm og óhreinir sokkar. Ekki mjög spennandi og honum fannst ekki taka því að fara lengra og sneri við. Móðir hans leysir þessa ferðalöngun hans enn sem komið er með því að setjast á hann. Þvílík bernskuminning sem það hlýtur að vera: "Ennþá man ég móðir mín, breiða hlýja rassinn þinn þegar þú komst og hlammaðir þér á mig.." Hinn breiði móðurlegi rass dugar enn sem komið er sem uppeldistæki, hversu lengi sem það verður. Kvöldið endaði með vígslu á nýju vöfflujárni, sem bakar belgískar vöfflur með stórum sverum reitum - namm.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home