föstudagur, júlí 27, 2007

Fjör

og gaman hjá byggikörlunum bak við húsið mitt. Í gær kom byggingarkrani, alveg nýr og glansandi, plastið var enn vafið utan um viðkvæma hluti. Þetta minnti á jólin, og þeir voru í allan dag að leika sér með hann, setja hann upp og láta hann hífa og slaka. Voru mættir fyrir klukkan átta í morgun út í grunn. Ég er búinn að koma uppþvottavélinni í samband og ég er alveg sáttur við hana. Það þurfti að vísu talsvert af skapandi pípulögnum til að tengja uppþvottavél árgerð 2007 við vatnslás frá árinu 1977 en það tókst. Ég á eftir að yrkja aðeins meira í pípurnar til að koma frárennslinu í góðan gír en það kemur. Vélin er lágvær, malar eins og Kampagrána á föstudagskvöldi og þvær ágætlega. Það eru tilfæringar á húsgögnum, en það hjálpar að hafa Andra, sem er orðinn mun sterkari maður en hann sjálfan grunar. En það á reyndar við um syni mína báða, að þeir eru heljarmenni að kröftum - ef þeir taka á. Brynjólfur var kallaður Binni sterki þegar á dagheimilinu. Getur verið að genin hans langafa þeirra, Kristins í Hellir, sem var hálftröll austan úr Holtum, séu að skila sér. Ég get auðvitað prófað það ef ég næ þeim báðum saman: Farið með þá austur að Volabrú, náð í þrevetra meri og beðið þá að bera hrossið yfir. Andri er hærri svo það væri betra að hann héldi undir afturendann. Kettlingurinn er allur að braggast, farin að éta þurrfóður og lepja úr skál. Mamma hennar kenndi henni hvorttveggja og við þurftum ekki að koma þar nærri. Hún er byrjuð að sýna henni sandkassann en sú litla hefur bara prófað enn hvort sandurinn sé ætur. Og svo hefur hún tekið upp residens í hrúgu af óhreinum þvotti inni í mínu herbergi. Mamma hennar er ekki par hrifin, því hún man kannski eftir því hversu háskalegt það var fyrir gráan kettling að liggja í óhreina tauinu: Það var auðvelt að ruglast á henni og óhreinum sokk.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home