þriðjudagur, júlí 17, 2007

Extras

Í morgun fórum við feðgar austur að Skógum til að vera aukaleikarar í leikinni heimildarmynd um Jónas Hallgrímsson. Við vorum klæddir upp sem 19. aldar herramenn og höfðum nóg að gera að pósa fyrir túrista sem smelltu myndum af okkur í óða önn: Við afgreiddum þrjú rútuhlöss af túristum þannig, þar af einn þýskan kirkjukór. Síðan voru tökur í kirkjunni þar sem Steinn Ármann þóttist vera Jónas og þrumaði einhverja ræðu yfir okkur. Einn okkar kom með hundinn sinn sem var hinn spakasti og þægasti aukaleikari. Við vorum svo látnir hósta, ræskja okkur, strjúka skeggið (Þeir sem voru með ekta skegg) og ég var látinn dotta og draga ýsur fyrir myndavélina undir ræðu þjóðskáldsins. Þetta tók fljótt af, ekki nema klukkutíma, og svo fórum við aftur heim. Kettlingurinn hefur fundið Paradís: Herbergið hans Andra. Þar er nóg af krókum og smugum og drasli til að smeygja sér framhjá, príla upp á og skríða undir. Í nótt dvöldu mæðgurnar til fóta í rúminu hans þar sem mamman notaði meðal annars tækifærið til að kenna dótturinni að vekja Andra: Kitla hann í iljarnar með framlöppinni. Og hætti því ekki fyrr en kettlingurinn var kominn í nokkuð góða æfingu. Litla stýrið notaði líka tækifærið til að rannsaka Andra endilangan, skríðandi fram og aftur eftir honum. Hún hefur núna komist yfir óttann við mannfólk.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home