Allt of mikil sól
og sæla. Ég nenni jafnvel ekki að tengja uppþottavélina sem ég ætla að láta létta mér lífið í vetur. Og ég þarf auk þess aðstoð Andra til að komast að kalda vatninu. Ég vissi alltaf að ef ég setti uppþvottavél í þetta litla eldhús mitt mundi það rústa eldhúsinnréttingunni, og þess vegna átti ég ekki við það. En: Eftir tíu mánuði kemur skurðgröfuskófla á þetta allt svo innréttingin mun rústast hvort sem er. Það verður uppþvottavél á staðnum sem ég flyt á, það er ákveðið mál. Og Andri verður hér í vetur, svo það er best að fara að njóta munaðarins strax. Ég ætla mér meiri tilfæringar til bráðabirgða, ég get þolað einhver óþægindi í nokkra mánuði. Í dag er sofandaháttur á köttum. Sú litla er farin að stelast í matarskál móður sinnar, svo það er líklega best að fara að gera ráð fyrir þurrfóðri í greyið. Okkur grunar að hún hafi étið sér til óbóta um daginn, allavega var hún eitthvað óhress en svo gaus upp svo mikil fýla í herberginu hans Andra að hann ætlaði næstum því ekki að tolla þar inni. Og kettlingurinn fór að sprella í honum þar að auki, eins og þær mæðgur gera reyndar með fjöri flestar nætur. Þær halda til þar inni og hlaupa upp og niður eftir honum og kúra utan í honum. En Andri er þolgóður og seigur og kvartar lítið.


Links to this post:
Create a Link
<< Home