fimmtudagur, júní 28, 2007

Ojamm já...

það er ekki margt í deiglunni. Enn einn dómurinn í Baugsmálinu - í þetta skiptið er Jón Ásgeir sýkn saka, Tryggvi dæmdur fyrir að eiga traktor og Sullenberger sendur feitur reikningur fyrir málskostnað, fyrir utan dóm. En það er bót í máli fyrir Tryggva að hann getur farið í það að slá bletti fyrir fólk. Meiri kómedían. Á Hvolsvelli er að byrja útrýming á fíflum, segir í Sunnlenska. Það er til bóta og væri kannski heppilegt sem eins konar "endlösung" á Baugsmálinu og öllu því stappi. Óhugguleg fyrirsögn, ég sé fyrir mér fullar rútur fara hjá húsinu mínu austureftir. Kannski þetta sé einhver ný lína hjá Sláturfélaginu. En það verður óneitanlega merkilegt að sjá hópinn sem bíður útrýmingar saman kominn. Nema þetta sé nýi framhaldsskólinn þeirra sem þeir ætla að fara að stofna. Og svo á að koma skólasögusafn á Eyrarbakka. Eyrarbakki er að verða eitt allsherjar safn. Kannski vantar forstöðumann þar. Ég veit þegar um einn safngrip sem ég mundi ná í á það safn ef ég réði þar einhverju. Stoppa hann upp eins og Bentham svo hann geti setið á öllum fundum sem fara fram á skólasafninu.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home