fimmtudagur, júní 21, 2007

Ég tek

pláss í Sunnlenska í dag. Heilsíðuviðtal með mynd af mér að lesa í bók og Andri segir að ég sé eins og prestur að lesa í biblíunni. Gáfulegur. Náði samt að rífa mig til þess að skrifa nokkrar síður. Kvöldið í Feðgabyggð fór í það að heimsækja forfeður. Já, það tókst að fá hinn heimakæra Andra til að standa upp og fara með í bíltúr. Skruppum að Vælugerði til að heimsækja sjálfan tíkarsprenginn og skoða okkur um hjá honum. Magnað útsýni þar af hlaðinu. Fórum svo um sveitirnar til að sjá hvernig körlunum gengi að búa. Einn bóndi hafði tekið sig til í þurrkinum og skellt öllu af túninu og rúllað upp. Heyskaður búinn í lok júní og ég man þá tíð að stundum var hann varla byrjaður á þeim dögum. Kötturinn gengst upp í móðurhlutverkinu en gleymir ekki sjálfri sér og er farin að skreppa út til að fylgjast með byggingarframkvæmdunum. Hún er vön að taka út vinnu dagsins hjá körlunum í grunninum þegar þeir eru farnir heim. Fylgist vel með.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home