Fátt að gerast
en ekkert slæmt, allavega. Ég er aðallega að láta mig dreyma og tek lífinu annars með ró. Fór í BYKO og keypti mér stól og dundaði við að setja hann saman, bæsa og lakka. Svo nú á ég allavega garðstól, og sá sem á klafann eignast líka kú. En hann getur farið vel á svölum líka. Kettlingurinn opnaði augun í dag en er aftaka stilltur enn að minnsta kosti og ekki mjög áhugasamur um umhverfi sitt enn sem komið er, unir við sitt inni í fataskáp og lúrir hjá móður sinni. Andri segir að hann verði líkari hamstri með hverjum deginum sem líður, og það er eins gott að móðir hans fattar ekki djókinn. Eða kærir sig kollótta.


Links to this post:
Create a Link
<< Home