föstudagur, júní 08, 2007

Feðgabyggð

er að finna á sér lappirnar og heilann. Andri er að ná tökum á nýja starfinu og var hæstánægður með hversu vel honum gekk að leiðbeina portúgölskum hjónum um Húsið í dag. Karlinn var að vísu húsgagnasali og bauðst til að koma mublunum í gott verð. Á leiðinni heim úr vinnunni sagði hann stundarhátt: "Þetta var bara góður dagur." Vitandi hvernig hann getur röflað þegar hann kemur heim úr vinnunni ber að fagna því að maðurinn getur líka fagnað jákvæðum atvikum. Hann er allavega hæstánægður þarna. Karlinn horfir á holuna í jörðina, teikningar af þriggja herbergja íbúð með bílageymslu í kjallara og 88.5 fermetra. Að bílastæðinu meðtöldu. Og á fasteignaauglýsingar. Það eru að vísu 10-12 mánuðir til stefnu, en vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig og vita hvernig markaðurinn er. Og verður. Því það kaupir enginn af mér luftíbúð. Og þó. Hver veit hvað. Ég er dálítið eirðarlaus og óþolinmóður nákvæmlega núna og ætti að vera að stússa í sögu áfengisins. Tími til kominn að opna þær möppur aftur. Kötturinn sefur flesta daga inni í skáp, eins og vænta má af hennni á rigningardögum.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home