laugardagur, júní 23, 2007

Það er

búinn að vera leiðinda belgingur í vindinum í dag. Svona norðanskot hafa ekki komið lengi á sumri en gamlir sveitastrákar þekkja þessa tegund af þurrki. Þetta var kallað rífandi þurrkur og það var hægt að sjá grasið þorna. Ég skutla Andra í vinnuna, hann er að taka á móti hópi af frönskum ferðamönnum og eftir stutta stund unir hann sér við það eins og andarungi í polli og ég þarf ekkert að segja honum til. Ég fer og kíki á sýningu Fornbílaklúbbsins og verð ekki fyrir neinum vonbrigðum. Þessir menn sem hafa verið að föndra lengi við gömul bílhræ og endurgera gamla mjólkurbíla eiga virðingu mína og aðdáun. Ég hins vegar er minna upprifinn yfir fólki sem kaupir sér kúlið með því að flytja inn einhvern kagga og stilla sér upp sem fornbílaeiganda. Í kvöld fer Andri í Húsið að taka móti Jónsmessugestum og á eftir förum við að brennunni þar að hlusta á Bjarna Harðarson tala. Ég bjóst við skemmtun, en Bjarni var bara að reyna að vera eins og Guðni Ágústsson og mistókst það. Æi góði Bjarni, vertu Bjarni þó þú sért kominn á þing. Hver tekur mark á öðru sem þekkir þig. Og ég þarf að vita hvort Bjarni eigi ógeltan svartan fresskött. Ef svo er þá á Lafði Hermína eitthvað vantalað við hann. Hann þarf allavega ekki að vera að reyna að læðast hingað inn til að stela matnum hennar. Týpísk hegðun karldýra og barnsfeðra. Læður hafa það annars fram yfir konur að þær eiga lítið vantalað við barnsfeður sína og fyrrverandi maka. Þær vita sem er að það hefur nákvæmlega ekkert upp á sig að vera að gargintætast í þeim. Á Selfossi er allt að breytast og verið að brjóta niður fortíð bæjarins hvort sem hún var til hægri eða vinstri. Það er eins og kommúnisminn hafi fallið þegar Kaupfélagið lagði upp laupana. Gamli Selfoss er óðfluga að hverfa og nýbyggingar að spretta upp. Nú þarf bara að rífa gamla gagnfræðaskólann, það mislukkaða hús, og þá er komið nýtt pláss, einhvrn veginn allt öðruvísi en það gamla. Og alls ekki verra, þannig séð.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home