mánudagur, júní 18, 2007

Byrjaði daginn

á því að skutla Andra á Bakkann og svo sjálfum mér í bæinn. Erindið var að kaupa nýja sæng - þegar köttur notar rúmið manns til að gjóta getur þurft að skipta um eitthvað. Kötturinn yfirgaf hins vegar fæðingardeildina í nótt og var næstum ófinnanleg í morgun: Hún fannst að lokum inni í fataskáp þar sem hún hafði komið sér og kettlingnum fyrir ofan í ferðatösku sem lá þar opin. Skrýtin lausn frá okkar bæjardyrum séð, en með augum kattarins bráðsnjöll: Hvar er betra að fela gráan kött en ofan í svartri tösku inni í dimmum skáp. Hún liggur þar hjá afkvæmi sínu og er hin umhyggjusamasta mamma. Heim aftur eftir að hafa gert ýmsar athuganir á tækjum og verðlagi án þess að kaupa. Veit núna hvað ég vil og veit hvað það kostar. Eitt var þó sem vakti athygli mína í kvöld þegar ég hlustaði á fréttirnar: Hugmyndir Sturlu Böðvarssonar um kvótakerfið voru sagðar óraunhæfar. Man einhver hversu langt er síðan að fjölmiðlar, fréttamenn og opinberir aðilar hafa sagt að Sjálfstæðismaður hefði óraunhæfar hugmyndir um nokkurn skapaðan hlut?
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home