Þar kom
að því. Karlinn stóð upp úr sumarfríinu, ákvað að nenna þessu ekki lengur og fór að gera eitthvað. Það þýðir að ein síða í Word var skrifuð um lýsingar útlendra ferðamanna á drykkjuskap íslendinga fyrr á tíð: Frá Dietmar Blefken til Uno von Troil og verður haldið áfram á morgun. Því ég skrapp út í búð og fjárfesti í flötum sjónvarpsskjá. Það hefur staðið til í talsverðan tíma en ég hafði ákveðið að bíða þar til þeir væru komnir niður fyrir ákveðið verð. Það reyndi nokkuð á hæfileika okkar feðganna sem iðnaðarmenn að festa hann á stofuvegginn, en hann small á festingarnar í fyrstu tilraun. Og Andri notaði skrúfjárnasettið sem hann fékk í stúdentsgjöf, loksins. Sýndi gamla takta í handlagni sem ég man eftir frá hans yngri árum. Hann hefur sem sagt ekki hugmynd um það sjálfur hvað verkfæri leika í höndunum á honum. Og svo erum við báðir sterkir í rýmisgreind damkvæmt Gardner. (Það fyndna er að þegar fjölgreindapróf Gardners er reynt á okkur feðgum verða niðurstöðurnar nánast nákvæmlega eins. ) Samkvæmt Gardner erum við feðgar mjög svipað inréttaðir í kollinum. ) Svo nú er skjárinn á veggnum, allar 42 tommurnar - já, best að hafa hann stóran fyrst verið er að þessu auk þess sem við feðgarnir höfum gaman af að horfa á DVD myndir heima þegar tækifæri er til. Og svo er bara að stúdera húsbyggingar og fasteignir - ég hef lært meira um þau mál á tveimur dögum en ég hafði nokkurn tíma búist við að þurfa að vita. Kynnt mér flotun í gólf, gerð milliveggja, hellulagnir, parkettlagnir og jafnvel pallasmíð. Fyrst ég er kominn á hreyfingu er best að kanna alla möguleika og sjá hvað er sniðugt í stöðunni.


Links to this post:
Create a Link
<< Home