Þambara vambara
þeysingsprettir - þetta eru allt saman gráir kettir - agara gagara yndisgrænum - illt er að hafa þá marga á bænum. Lafði Hermína gaut í morgun tveimur gráum kettlingum en aðeins annar var lifandi, svo nú á heimilið tvo grá ketti. Annað hefur ekki gerst á þessari þjóðhátíð í Feðgabyggð. Nema þegar ég eldaði svínalundir í karrýrjóma með banönum og Andri gaf mér einkunnina "skrýtinn" - en með bros á vör. Það er gaman að vera skrýtinn. En merkilegt að Andri skuli fyrst vera að fatta það núna.


Links to this post:
Create a Link
<< Home