miðvikudagur, júní 13, 2007

Allt eins

og í gær. Fór á fætur, fór í sturtu, skutlaði Andra í vinnuna og sagði honum að hössla fleiri flugfreyjur. Aftur heim, fékk fréttirnar á CNN og Al Jazheera. Leið eins og ég sæti í lobbýinu á ensku hóteli. Læt það duga sem utanferð í sumar. Tók til, gerði kvöldmatinn -(kalt pylsusalat, borið fram með pilsner) og skrifaði eina síðu. Sem þýðir að ég kláraði að taka upp úr einni heimild. Sótti Andra, engar flugfreyjur. Settist út í garð og ræddi við köttinn, horfði aðeins á History Channel. Ömurlega illa gerð og vitlaus mynd um víkinga. Í holunni við hliðina á húsinu mínu standa menn í járnum og öðru hverju kemur bíll með steypu sem er sprautað ofan í til þess gerðar holur. Þetta eru sennilega beð fyrir húsfræ. Bráðum fer að spretta hús þarna. Alls staðar er verið að gera eitthvað: Þetta vor er greinilega uppgripatími fyrir holukarla og húsbrjóta. Það er verið að brjóta niður húsin gömlu frá Höfn. Sem von er - hvaða bær getur haft sláturhús í miðbænum til frambúðar. Annaðhvort að breyta því í bar og láta gestina um að rífa það eða ráðast á það strax.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home