Sjálf og sam?
Þar kom að því. Samfylking í ríkisstjórn og I. Sólrún bæði kampakát og mun brosmildari en venjulega þegar hún kom af fundi með Geir. Sælir eru hógværir, frænka. Þetta mun verða svona..ja, ríkisstjórn. En öðru vísi en sú sem nú situr. Það er eiginlega aðalatriðið. Og það þýðir að nú munum við fá það sem þjóðina vantar einmitt núna: Nýsjálenskt lambakjöt. Meira framboð á lambakjöti, það er málið. Svo Geir Haarde er gamall nemandi Jóns Sig. Og Guðni Ágústsson gerði því skóna að það mundi hafa áhrif á stjórnarþátttöku Framsóknar. Margt geta gamlir lærifeður- eða ekki. Ég býst allavega ekki við því að lenda í þessari stöðu gagnvart Björgvini G. Allt fullt af sagnfræðingum þarna: Sólrún, Björgvin og Jón Sig. Og nú fær Framsókn gamla loksins tækifærið sem hana vantaði til að hysja upp um sig. Spurning hver það verðu, því nú munu hausar fjúka. Og Bjarni Harðarson mun sennnilega finna sig fljótlega í stöðu sem hann óraði ekki fyrir. Guðni yrði miklu betri formaður þar en hann heldur. Jón Sig var sár, sem von er, hann hefur fórnað tveimur góðum embættum fyrir flokkinn og er núna atvinnulaus: Laun flokksins eru vanþakklæti. Það verður spennandi að sjá ráðherralistann.


Links to this post:
Create a Link
<< Home