Og í dag
fór grafan á lóðinni við hliðina í gang. Hún hefur staðið þar stillt og prúð síðan 1. maí og tók loksins við sér, eftir að kosningarnar höfðu leitt í ljós óbreytt ástand. Fyrst var gerð hola í jörðina. Svo stoppaði grafan og þrír holuspekingar komu, stóðu við holuna með hendur í vösum og spáðu í hana. Kannski spá byggingamenn í holur eins og sumt fólk spáir í bolla. Þetta var augsýnilega merkileg hola. Fólk sem fer um götuna gáir ofan í hana, ég veit ekki hvað það sér. En holur eru mikilvægar. Sem fer þó eftir því hvað er látið í þær og lagið "Digging a hole" með bítlunum hefur ómað í höfðinu á mér í dag. Svo fór grafan í gang aftur og verktakinn setti upp girðingar. Sem enginn mótmælandi hefur rifið niður. Nú er ég sem sagt nágranni stórrar holu í jörðina og auk þess er kominn upp moldarhaugur. Sem kötturinn horfir á áhugasöm og hugsar sér sennilega got til glóðar þegar fer að skyggja.


Links to this post:
Create a Link
<< Home