Nú er fjör
í framboðsmálunum. Sjálfstæðismenn eru enn með hoppukastalann í gangi við Tryggvaskála: Við hiðina á vindbelgnum er stórt skilti sem á stendur "Við náum árangri." Undir því skilti er svo mynd af manni sem gerði sig landsfrægan fyrir tæknileg mistök. Sannfærandi. Framsókarmenn gefa mér kosningakaffi fyrir utan Nóatún. Hálfa lögun á könnu. Búmannlegt. Samfylkingin gefur tré. Með rótum. Ekki sannfærandi, því uppspuni er oft frá rótum. Frjálslyndir eiga vinninginn: Þeir hafa slegið upp tjaldi á grasbletti og við hliðina á því stendur virðulegur útikamar á kerru. Traustvekjandi. Þetta endurspeglar gegnheilt pólitískt raunsæi og auga fyrir raunverulegum þörfum þjóðarinnar. Ég ætla ekki að tala um andlegt ástand sumra frambjóðendanna. Og svo hefur þetta þann kost að þeir geta haft sig á brott með hraði eins og var gert við Sígaunana í fyrradag. Kosningar hafa þegar fætt af sér einn sáran tapara: Ef Eiríki Haukssyni hefur verið alvara með það sem hann sagði eftir keppnina er hann meiri krakki en börnin sem hann kennir. En það verður að taka mið af því að maður sem hefur keppt þrisvar í þessari keppni getur varla verið alveg í lagi. Heima hjá mér er kyrrð og ró. Ekkert nema kötturinn og svo hann sonur minn, sem líkist engu meira en tvíhalaklipptum hálfpatróna. Sem hann er, garmurinn, og viðurkennir það fúslega með ljúfu brosi.


Links to this post:
Create a Link
<< Home