Línur sumarsins
fara að skýrast. Andri er kominn með vinnu, hann verður í Húsinu á Eyrarbakka að taka á móti gestum, þar sem ég var fyrir nokkrum árum. Nei, ég er ekki að koma mér upp erfðaprins. En ef hann vill vera í sagnfræði er best að hann kynnist því hvað starfið gengur út á. Það hefur sína sérstöku ögrun að afkvæmið sé í því sama og maður sjálfur, en það verður aldrei eins. Og þá fer ég að taka fram bækurnar og halda áfram að stúdera sögu áfengisins. Svo sumarið er þá komið á kortið. Það hefur sína kosti að vinnan er á mannsæmandi tíma, svo ég þarf ekki að bíða með mat og veit nokkurn veginn hvenær hann er búinn. Þó það sé utan Selfoss og þurfi að skutla honum er ekki lant niður á Bakka. Holan í jörðina fyrir utan húsið mitt heldur áfram að stækka. Alltaf einhverjir holuspámenn að kíkja ofan í hana og stúdera gatið. Holufræði er talsverð vísindi sem ég hef aldrei velt fyrir mér neitt að ráði, enda ekki þurft þess. Ég þarf þess svosem ekki, en það veldur ef til vill vissum áhyggjum þegar holan er komin upp að stofuveggnum.


Links to this post:
Create a Link
<< Home