Köttur Schrödingers
varð með frægari köttum í vísindunum. Schrödinger hugsaði sér að setja köttinn í kassa og skál með eitri í og loka honum. Sem þýddi að kötturinn gat verið hvort sem er, lifandi eða dauður í senn. Þetta varð til þess að nútíma eðlisfræði fann sér nýjar víddir. En ef Schrödinger hefði sett dæmið fram svona: Tökum framhaldsskólanem. Bíðum. Bíðum. Reynum að ná sambandi við nemandann með farsíma, tölvupósti og SMS. Og skammtaeðlisfræðin tekur á sig nýjar og gjörsamlega ómælanlegar víddir, svo mannlegt ímyndunarafl hrekkur ekki til. Þetta á kannski við líka um áhuga manna á stjórnarsetu Framsóknarflokksins. Nýkjörinn þingmaður Suðurlands mætir á sinn fyrsta þingflokksfund og bloggar eftir það um lífrænan úrgang, safnhauga og tómar augntóftir á sviðakjömmum. Svona svipað og þegar ég blogga um köttinn þegar ég vil ekki segja hvað mér liggur á hjarta. Feðgabyggð fór í bæinn til lækna sinna. Tvíhalaklippti hálfpatróninn fékk grænt ljós, saumarnir teknir úr og hann getur farið að leita sér að vinnu. Blóðþrýstingurinn í mér var 130 í efri mörkum. Jamm, ég er með háþrýsting.


Links to this post:
Create a Link
<< Home