Ég ætti víst
að vera að kommentera Evróvision-lög - en ég sleppi því. Sviðsmyndin er að bera alla keppnina ofurliði. Hún ríður lögunum meira og minna á slig. Sigmar fer á fullum kostum í kommentunum. En Evróvisjón er víst núna að ganga út á það að ofgera. Keppnin minnir mig meira og meira á Anti-Evróvision í Stokkhólmi 1975, þar sem Megas keppti fyrir hönd Íslands. Og Þrjú á palli. Megas sagði að sér hefði gengið ágætlega þegar hann kom heim. Eins og sannur íslendingur. Ég ætti víst að segja eitthvað gáfulegt um pólitíkina líka, en ég er ekki moggabloggari. Bara svolítið lífsþreyttur sagnfræðingur. Það kannast allir við fyrirbærið Luftgítar. Ef þið hafið verið að horfa á Aijrík Hákson áðan. En í vetur sýndi einn nemandi minn nýja íþrótt í tíma - Luftglímu. Þar sem er glímt við ímyndaðan andstæðing. Ég get með góðri samvisku sagt að ég hafi í vetur kennt íslandsmeistaranum í luftglímu kvenna. En núna er það nýjasta í luftíþróttum svokölluð Luftframboð. Þar sem menn þykjast vera í framboði eða halda að þeir séu það. Eins og Íslandshreyfingin, til dæmis. Og ég er farinn að halda það sama um fleiri frambjóðendur.


Links to this post:
Create a Link
<< Home