mánudagur, maí 07, 2007

Ég fór

í gær til Reykjavíkur að sækja Rófustubb sagnfræðinema. Já, það er enn verið að laga á honum skottið. Þessir sagnfræðinemar eru eins og minkurinn - veiddir, teknir og halaklipptir hvar sem til þeirra næst. Hvað ætli hreppstjórinn borgi fyrir stykkið? Á leiðinni til baka ætlaði ég varla að komast heim fyrir hoppuköstulum. Framsókn var með hoppukastala fyrir framan Krónuna, og Sjálfstæðismenn með annan - stærri - fyrir framan Tryggvaskála, og í sænsku fánalitunum, þar að auki. Ég fór að velta fyrir mér hvort Ómar og félagar væru með trampólin einhvers staðar að íslandshreyfast. Eða frjálslyndir sitjandi á gömlum lóðarbelgjum í einhverjum garðinum. Og Vinstri grænir hoppandi einhvers staðar á rassinum einum saman eins og jólasveinninn á barnaböllunum í sveitinni heima forðum. En þetta er það sem kosningarnar núna eru - í hnotskurn. Óttalegar hoppukastalakosningar. Þeim væri nær að hafa svona skemmtanir árlega og þá lengur í einu, svona fyrir yngstu kjósendurna. Það var alla vega gaman hjá ungum Sjálfstæðismönnum í gær - boing boing.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home