þriðjudagur, maí 01, 2007

Fysti maí

er frídagur en ég hef samt komið heilmiklu í verk, sem hefur legið á borðinu eða uppi á hillu eða einhers staðar út um íbúðina. Á lóðinni við hliðina stendur núna stærðar grafkú, eins og það heitir á færeysku, og það verður líklega farið að grafa fyrir framtíðarheimilinu mínu næstu daga. Svo ég ætti kannski að spara mér tiltektirnar. Í sjonvarpinu eru einhverjir pólitíkusar að tjá sig. Með ótrúlega hallærislegum illa hnýttum og ljótum hálsbindum. Steingrímur Sigfússon fær mínus fyrir ljótasta bindið, Jakob Magnússon fyrir það glannalegasta. Ef þetta væri leiksýning - sem það auðvitað er - væri ég að velta fyrir mér hvað væri að gerast í sýningunni. Til hvers eru þessir menn að hnýta um hálsinn þegar það sést svo greinilega að hálsbindið er þeim ekki eðlilegt, eins og Sjálfstæðismönnum? Ekki verður þetta til að auka viðruleikann eða til að ég taki meira mark á þeim. Ég er tískulögga í kvöld, greinilega. Og vorið er enn að koma: Farfuglarnir tínast til, fellihýsin eru komin út á götu, fyrstu mótmælendurnir eru að sjást koma með norrænu. Hvernig er það með þessa mótmælendur? Eru þeir með merki á hálsinum eins og gæsin? Eru einhvers staðar mótmælendafræðingar með sjónauka að skima eftir þeim? Eigum við að setja matarbita út á götu handa þeim eins og smáfuglunum?
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home