Það er alltaf
ægilega gott að hafa verið duglegur og í dag lítur heimilið mitt betur út en í gær. Verkefni sumarsins á næstunni verða líklega að þrífa eitthvað svolítið á hverjum degi og í dag byrjaði ég þar sem ég endaði í fyrra: Á bókahillunum. Grisjaði og raðaði upp á nýtt. Það er snyrtilegra. Það er víst og rétt að það hefur heilmikið gengið á í samfélaginu í dag, Jón Ásgeir fékk smá skell á puttana, soso, óþekkur strákur, svona gerir maður ekki. Samt er þessi dómur yfir honum eiginlega málamyndagerningur til þess að þessi hluti ákærunnar fari fyrir hæstarétt: Það er varla hægt að hugsa sér minni dóm en þriggja mánaða skilorð. Og svo er það stóra tengdadótturmálið - já það er skrýtið mál, en nokkuð augljóst að þar hafa hendur um vélt sem kunnu á þetta kerfi og vissu hvernig átti að fara að því að fá þennan ríkisborgararétt svona einfaldlega. En samt er ekki hægt að neita því að fólki er illa mismunað. Pú..epú. Það er ekki öll vitleysan eins.


Links to this post:
Create a Link
<< Home