Að blogga
um pólitíkina, já. Ehumm já. Ég ætti að fara í sturtu, setja upp þverslaufu og opna moggablogg. Geir Haarde er kindarlegur á svipinn eins og skólastrákur sem hefur verið staðinn að því að slá sér upp með ljótri stelpu á skólaballi. Lítur út eins og hann hafi borðað hattinn sinn. Sólrún brosir breitt sem von er og þau voru gleiðbrosandi bæði tvö þegar þau voru að harma Íraksstríðið á Þingvöllum. Já já, við erum voða svekkt út af því. Ég hlustaði eftir þessum miklu yfirlýsingum um menntamál á heimsvísu og að Ísland yrði meðal fremstu landa á því sviði, en heyrði lítið nema ávísun á japl og fuður, handapat, fálm og fip. Sem sagt óbreytt ástand. Samfylkingin brosir líka breiðar en tilefni er til, því Sjálfstæðisflokkurinn hefur tögl og hagldir á mikilvægustu ráðuneytunum og fær þar að auk heilbrigðismálin, sem þá hefur lengi langað til en Framsókn verið Klængsselstuddinn á veginum þar. (Tuddinn í Klængsseli var á sínum tíma frægur farartálmi Flóamanna á leið upp á Selfoss, því hann átti til að liggja á veginum og sóla sig þegar þannig lá á honum.)Framsókn er mér hugstæð núna: Kalt er við kórbak, kúrir þar Jón hrak. Núna er Guðna treystandi til að vera flokksformaður, allavega fram undir næstu kosningar en þá verður hann sleginn af, ef það verður þá einhver eftir nema Bjarni Harðar til að taka við af honum. Þetta er samt betra fyrir flokkinn en margur hyggur: Hann þarf að losa sig við sem mest af Halldórs Ásgrímssonar genginu. Líka Valgerði. Sóknin inn á þéttbýlisfylgið er strönduð og það illilega.


Links to this post:
Create a Link
<< Home