miðvikudagur, maí 16, 2007

Auglýsing

í síðasta Bændablaði hefur vakið athygli manna. "Slóði óskast til kaups, þarf að vera staðsettur á Suðurlandi. Upplýsingar í síma..." Og ég sem hélt að það væri nóg framboð á þeim: Það hlýtur að vera duglegur bóndi sem þarf að leita af bæ að slíku verkfæri. Hm...Andra vantar vinnu. Hér á kennarastofunni tgelja margir sig vera aflögufæra með tækið. Hins vegar er auðvelt að búa til slóða. Faðir minn bjó til tvo í sínum búskap (nei, það var ekki ég og bróðir minn.) Til að búa til slóða þarf eitthvað af spýtum, gaddavír og torf. Á sumrin skaut torfið rótum, og á vorin fór ég oft út að slóðanum þar sem ég hafði skilið hann eftir árið áður, batt kaðal í bjálkann, tengdi við traktor og rykkti rótföstum slóðanum af stað. Það skýrir kannski nafngiftina á tækinu, þó einhverjir teldu annað.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home