Staðgöngumæðrun
hvað. Og hvers vegna skyldi það vera bannað. Líklega eru menn eitthvað (og ég segi menn) hræddir um að einhverjar konur fari að ráða konur í vinnu til að ganga með fyrir sig svo þær þurfi ekki að hafa áhyggjur af vexti sínum eða starfsframa. Mér finnst lítið jafnrétti í þessu: Staðgengilsfeðrun hefur sem sé verið stunduð hér frá því land byggðist og enginn talið það ólöglegt. Jafnvel þótt eðlilegt mál og nauðsynlegt. Það vekur athygli mína að það eru aðallega karlmenn á miðjum aldri sem ég heyri úttala sig um þetta fyrirbæri. Og ég veit að karlmenn á miðjum aldri geta verið aftaka forpokaðir og leiðinlegir, verandi það sjálfur. Ég stend mig stundum að því að segja stelpunum sem ég kenni að loka eyrunum ef miðaldra karlar fara að lesa þeim siðapistlana. Er kannski ekki í sem bestri aðstöðu sjálfur til að vera marktækur, en samt finnst mér betra fyrir konur að heyra ekki tuðið í þessum tautarablesum. Ég heyri lítið um álit kvenna, og karlmenn virðst vera gagnteknir af mæðrahyggju, trúandi á hið dularfulla samband móður og barns sem verður til við meðgöngu fæðingu og brjóstagjöf. Ég verð að játa að ég hef aldrei verið í neinu mystísku sambandi við móður mína, það er frekar bara svona eins og fólk er flest. Og mér finnst ég ekki hafa misst af neinu. Konur sem hafa gengið með og haft á brjósti segja aðra sögu, í raun og veru, ef þær viðurkenna á annað borð að þeim hafi ekki liðið neitt sérstaklega, bara verið þreyttar, pirraðar og sárar í geirvörtunum. Það er engin dulúðarblæja yfir þessu, bara erfið líffræði. Svo ég sé ekki hvað er rangt við þetta. Og enn síður hvers vegna það er skaðlegt að staðgöngumóðirin hafi barnið á brjósti.


Links to this post:
Create a Link
<< Home