laugardagur, apríl 07, 2007

Prinsessa í óskilum.

Vanalega tek ég ekki mikið mark á draumum mínum. Svo kolruglaðir sem þeir geta verið og færustu draumaráðningarkonur og dulspekingar standa á gati. Fyrir hverju getur það líka verið að dreyma Ku-Klux-Klan menn með vélbyssur uppi á leiksviði syngjandi Jeg har min hest jeg har min lasso, jeg har min pige i el Paso..sérstaklega þegar þeir taka min bedste ven var indianer. Mínir draumar eru ekki dularfullur og óræður lykill að lokaðri framtíð. Ég efast jafnvel um að færustu klámlektorar gætu séð eitthvað pervertískt við þá. Og auk þess á ég nóg með að sjá framtíðina í vöku. Skýrt og greinilega þó ég kæri mig ekki alltaf um það. En um daginn dreymdi mig að einhverjir sjóræningjar hefðu rænt prinsessu - gullfallegri í hvítum skósíðum kyrtli, með sítt liðað ljóst hár og gullkórónu. Því miður fannst sjóræningjunum bitinn full erfiður að kyngja og dömpuðu dömunni á mig. Þegar ég vaknaði var prinsessan sem sagt komin í mínar hendur og ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera við gripinn, því ég hafði ekkert um þessa forsendingu beðið og komst að þeirri niðurstöðu að einhver annar ætti hana. Svo að ef einhver saknar drottningar drauma sinna, endilega hafið samband og það getur verið að ég gæti hjálpað henni til réttra aðila. Nema að einhvers staðar sé svona tapað-fundið staður fyrir draumaprinsessur. Endilega látið mig vita áður en ég fer með hana í Góða hirðinn.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home